Það kemur sumum eflaust ekki á óvart að framhjáhald á sér stundum stað á vinnustöðum. Í könnun, sem Forbes gerði, sögðust 40% aðspurðra hafa haldið framhjá maka sínum með vinnufélaga.
Fyrir áhugasama þá segir einkaspæjarinn Paul Evans að fólk í eftirfarandi starfsstéttum sé líklegast til að halda framhjá maka sínum. Hann byggir þetta á reynslu sinni eftir að hafa rannsakað mörg þúsund framhjáhaldsmál.
5.sæti – Tölvusérfræðingar – Þú heldur kannski að manneskja, sem valdi sér starf sem heldur henni fastri við skrifborð, sé ekki týpan sem hellir sér út í framhjáhald.
„Við höfum glímt við fleiri mál innan tölvugeirans en við áttum von á,“ sagði Paul að sögn Metro.
Hann benti á að fólk úr þessum geira sé líklegra en aðrir til að kunna ýmsar brellur til að fela rafræn fótspor sín og hefur auðvitað rosalega góða afsökun fyrir að vera mikið við skjáinn (til dæmis við að skiptast á skilaboðum við viðhaldið).
4.sæti – Sölufulltrúar – Þeir klifra upp metorðastigann, ná góðum samningum á síðustu stundu, það er einfaldlega svo mikið adrenalín í fundarherberginu að það verður að teljast líklega að einhver fækki fötum.
Paul tekur undir þetta og segir að sölufólk sé mjög sannfærandi að eðlisfari og það geti hjálpað því að stjórna öðrum.
3.sæti - Flugfreyjur og flugþjónar – Þetta kemur sumum eflaust ekki mjög á óvart því oft er talað um að þessi starfsstétt sé kræf þegar kemur að framhjáhaldi.
Paul sagði að hann hafi rannsakað fjölda mála varðandi fólk í þessari starfsstétt og hafi séð ákveðna tilhneigingu þar sem fjarlægðir og flott umgjörð geti ýtt undir freistingar, sérstaklega þegar fólk er víðs fjarri maka sínum. Þá geti öll mörk horfið skyndilega.
2.sæti – Starfsfólk í símaverum – Starfsfólk í símaverum vinnur oft við mjög þröngar aðstæður og langar vaktir. Þetta hefur í för með sér að það er mjög nærri vinnufélögum sínum.
Paul sagði að starfsfólk í símaverum sé undir miklu álagi alla daga og það sé því ósköp eðlilegt að það tengist fólkinu í kringum sig. „Því miður fyrir suma, þá fara þessi vinasambönd oft yfir strikið þegar fólk er klukkustundum saman hlið við hlið,“ sagði hann.
1.sæti – Heilbrigðisstarfsfólk – Ef þú hefur horft á Grey‘s Anatomy þá eru þetta ekki nýjar fréttir fyrir þig.
Paul segir að heilbrigðisstarfsfólk sé það sem haldi mest framhjá.
Hann nefndi sem dæmi hjúkrunarfræðing sem hélt framhjá maka sínum með lækni sem hún vann með. Þau stunduðu iðju sína í lausum herbergjum á sjúkrahúsinu.
Hann sagði að heilbrigðisstarfsfólk vinni oft mikið og starfið sé mjög stressandi og geti valdið kvíða. Allt þetta og hugsanlegar fjárhagsáhyggjur í ofanálag geti ýtt undir framhjáhald.