Ósköp venjulegur vinnudagur við hraðbrautina tók skyndilega óvænta stefnu fyrir starfsfólkið sem var að slá grasið með fram hraðbrautinni. Niðri í skurði, við hlið hraðbrautarinnar, lá taska sem reyndist innihalda mikil verðmæti.
Taskan fannst við hraðbraut nærri Lovosice í Tékklandi um miðjan september að sögn Fakt sem segir að sláttufólkið hafi hringt í lögregluna eftir að það fann töskuna.
Í töskunni voru rúmlega 400 sjaldgæfar safnaramyntir. Verðmæti þeirra er að mati lögreglunnar sem svarar til um 50 milljóna íslenskra króna.
Lögreglan komst fljótlega að því að þetta verðmæta safn hafði ekki gleymst þarna. Myntunum hafði verið stolið í Prag fyrr í september.
Franskur safnari hafði sótt sýningu í borginni og haft myntsafnið sitt með. Tvær manneskjur stálu töskunni úr bíl við sýningarhöllina. Bíll þjófanna var með pólsk skráningarnúmer en lögreglan hefur ekki skýrt frá þjóðerni hinna grunuðu.
Stóra spurningin er auðvitað af hverju þjófarnir losuðu sig við töskuna í skurðinn en svarið er hugsanlega að þeir hafi óttast að safnið myndi koma upp um þá því staðsetningarbúnaður fannst nærri töskunni.
Svo er ekki hægt að útiloka að þjófarnir hafi óttast að erfitt eða jafnvel útilokað væri að koma myntunum í verð.