Pressan

Ástarævintýrinu sem hófst í Survivor lauk með ósköpum - Nú er hún eftirlýst eftir að hafa rænt syni þeirra

Mynd

Jaime Dugan og Erik Huffman eru bæði fædd og uppalin í Suður-Karólínu. Þó aðeins 40 kílómetrar höfðu skilið þau að allt þeirra líf hittust þau ekki fyrr en þau kepptu bæði í 15. þáttaröð raunveruleikaþáttanna Survivor árið 2007. Þar fengu áhorfendur að fylgjast með ástinni blómstra á milli þeirra. Hvorugt þeirra vann keppnina en þau unnu þó hjarta hvors annars og giftu sig með pomp og prakt árið 2009. Árið seinna kom sonur þeirra Harper í heiminn.

Huffman starfaði sem aðstoðarmaður á læknastofu og Dugan gerðist vinsæll áhrifavaldur undir notendanafninu Charleston Blonde. En þau lifðu ekki hamingjusöm til æviloka þrátt fyrir ævintýralega ástarsögu. Árið 2024 gengu þau í gegnum hatramman skilnað sem lauk með því að Huffman hlaut forsjá sonar þeirra. Dugan fékk umgengni aðra hvora helgi.

Þann 30. ágúst sl. átti Dugan að skila syni þeirra eftir umgengni. Það gerði hún þó ekki og hefur lögreglu ekki tekist að hafa uppi á mæðginunum. Alríkislögreglan hefur nú lýst eftir drengnum sem er saknað og talinn í hættu.

Huffman segist vakinn og sofinn í leitinni að syni sínum. Hann hefur ekið um Suður-Karólínu þar sem hann ræðir við lögreglu í mismunandi umdæmum í von um að finna son sinn.

Dómari í Suður-Karólínu boðaði til neyðarþinghalds vegna málsins þar sem Dugan mætti í gegnum fjarfundabúnað en neitaði að gefa upp dvalarstað sinn. Dómari skipaði henni að upplýsa hvar drengurinn væri niðurkominn en Dugan neitaði. Var Dugan skipað að mæta í eigin persónu í dómsal þann 18. september, en hún lét ekki sjá sig og gaf dómari þá út handtökuskipun.

Samkvæmt gögnum málsins hefur Dugan sakað fyrrverandi eiginmann sinn um heimilisofbeldi og föðurömmu drengsins um kynferðisofbeldi. Hún hefur þó neitað að heimila lögreglu að taka skýrslu af drengnum vegna málanna. Dómari telur því engan fót fyrir ásökununum og því hafi Dugan enga afsökun til að nema drenginn á brott frá forsjáraðila.Huffman hefur eins neitað fyrir ásakanir um ofbeldi. 

Dugan var í fyrra sökuð um stafrænt umsáturseinelti, svo sem með því að senda skilaboð til vina Huffmans. Rannsókn málsins var síðar hætt. Viku eftir skilnaðinn óskaði Dugan eftir því að fara í gjaldþrot vegna gífurlegra skulda sem námu 63 milljónum króna. 

Lögmaður Dugan hefur minnt á að enginn geti talist sekur fyrr en sekt sé sönnuð og að skjólstæðingur hans hafi til þessa ekki verið sakfelldur fyrir refsilagabrot. 

New York Post greinir frá.