Árið 1959 datt Falguni Devi í hlíð nærri heimili sínu í Bihar á Indlandi. Næsta sjúkrahús var aðeins í nokkurra kílómetra fjarlægð í beinni loftlínu. En hátt fjall var á milli og því var vegalengdin sem þurfti að fara 55 kílómetrar. Hún komst ekki á sjúkrahúsið í tæka tíð.
Eiginmaður hennar, landbúnaðarverkamaðurinn Dashrath Manjhi, var að vonum niðurbrotinn en hét því að stytta þessa vegalengd. Fólk sagði hann brjálaðan en það hélt ekki aftur af honum og hann hófst handa.
Frá 1960 vann hann einn, dag og nótt, án aðstoðar yfirvalda, aðeins með hamar og meitil að vopni við að höggva leið í gegnum fjallið. Hann seldi geiturnar sínar þrjár til að kaupa verkfæri. Hann borðaði eins lítið og hann komst af með. Hann svaf lítið og hélt stöðugt áfram að höggva.
Í 22 ár.
Þegar hann lauk verkinu 1982 hafði hann búið til 110 metra langa og 9 metra breiða braut í gegnum klettavegginn. Fjarlægðin til sjúkrahússins styttist úr 55 kílómetrum í 15.
Eiginkona hans naut ekki góðs af þessu en mörg þúsund aðrir hafa síðan notað leiðina og hafa náð að fá hjálp tímanlega af því að maður með hamar og meitil að vopni neitaði að sætta sig við að ekki væri hægt að sigrast á fjallinu.
Hann lést 2007 og heiðraði indverska ríkið hann með því að veita honum útför á kostnað þess.