Pressan

David Grusch stígur fram á ný – Segir bandaríska hermenn hafa fallið í átökum við ómennskar verur

Mynd

Bandaríski UAP-uppljóstrarinn David Grusch steig fram á ný í vikunni í löngu viðtali hjá Joe Rogan. Þar setti hann fram einhverjar ótrúlegustu fullyrðingar sínar til þessa: um risavaxnar stöðvar undir hafinu, endurheimt óþekktra farartækja, ómennskar verur og jafnvel vopnuð átök þar sem bandarískir hermenn eru sagðir hafa fallið. Gunnar Dan fjallaði um viðtalið í smáatriðum í Hlaðvarpinu Geimsýran. 

David Grusch er enginn nýgræðingur þegar kemur að bandaríska leyniþjónustukerfinu. Hann er fyrrverandi yfirmaður í bandaríska flughernum og starfaði innan leyniþjónustunnar, meðal annars hjá National Reconnaissance Office, NRO, og National Geospatial-Intelligence Agency, NGA. Hann var jafnframt fulltrúi NRO gagnvart UAP Task Force og kom að UAP-greiningu innan NGA.

Grusch varð heimsþekktur árið 2023 þegar hann steig fram sem uppljóstrari og hélt því fram að innan bandaríska stjórnkerfisins væru starfrækt leynileg verkefni sem hefðu í áratugi safnað saman óþekktum farartækjum og reynt að rannsaka og endurgera tæknina. Síðar sama sumar bar hann vitni undir eiði fyrir Bandaríkjaþingi.

Nú er Grusch mættur aftur í eitt stærsta hlaðvarp heims, The Joe Rogan Experience. Viðtalið, þáttur númer 2560, birtist 30. september og er rúmlega tveggja og hálfs tíma langt.

„Á stærð við margar borgarblokkir“

Eitt furðulegasta atriði viðtalsins snýr að hafinu.

Grusch heldur því fram að upplýsingar séu til innan bandaríska kerfisins um gríðarstór mannvirki eða stöðvar undir yfirborði sjávar. Hann lýsir þeim sem á stærð við margar borgarblokkir og segir óþekkt farartæki koma og fara frá þessum stöðum.

Hann vísar meira að segja í kvikmynd James Cameron, The Abyss, frá 1989 og segir að fólk innan þessa heims hafi í hálfkæringi lýst myndinni sem eins konar „docudrama“.

Grusch ræðir einnig upplýsingar um mismunandi gerðir óþekktra farartækja – diska, egglaga fyrirbæri, Tic Tac-laga hluti, búmeranga og hálfmánalaga fyrirbæri.

En svo verða hlutirnir enn furðulegri.

Reptilian-verur skotnar – Bandaríkjamenn féllu

Ein svakalegasta frásögn viðtalsins snýr að upplýsingum sem Grusch segist hafa aflað við rannsóknarvinnu sína og yfirheyrslur á fólki sem hafði beina þekkingu á leynilegum UAP-aðgerðum.

Grusch segir frá endurheimtaraðgerð þar sem lifandi reptilian-verur komu við sögu. Á vettvangi hafi einnig fundist látnar verur af þeirri gerð sem gjarnan er kölluð „Grays“.

En þar með er sagan ekki öll.

Að sögn Grusch kom til vopnaðra átaka milli reptilian-veranna og bandarískra hermanna eða starfsmanna. Bandaríkjamenn hafi bæði særst og látist í átökunum og reptilian-verurnar hafi að lokum verið skotnar.

Joe Rogan spyr Grusch sérstaklega hvort Bandaríkjamenn hafi skotið verurnar – og Grusch svarar því játandi.

Hann veltir jafnframt upp þeim möguleika að atvikið hafi tengst átökum milli ólíkra tegunda NHI, eða non-human intelligence.

Grusch segir einnig að hann hafi sjálfur séð myndband frá annarri endurheimtaraðgerð þar sem sjá má þrjá eða fjóra látna líkama. Hann lýsir þeim sem mjög mannlegum í útliti, með ljósbláleita húð og sítt gráleitt hár.

Plasmoids, meðvitund og gervigreind

Viðtalið fer einnig inn á enn framandlegri slóðir. Grusch veltir upp möguleikanum á svokölluðum sentient plasmoids – plasmafyrirbærum sem gætu sýnt einhvers konar greind.

Umræðan teygir sig yfir í meðvitund, microtubules og hugmyndir um tengsl meðvitundar og skammtafræði. Þá telur Grusch mögulegt að sífellt öflugri gervigreind geti sjálf farið að finna mynstur, eyður og ósamræmi í opinberum gögnum og þannig orðið þáttur í framtíðarupplýsingagjöf um UAP.

Stór tíðindi fyrir 2028?

Grusch telur jafnframt að ríkisstjórn Donald Trump geti komið af stað upplýsingagjöf áður en kjörtímabilinu lýkur og að ferlið þurfi að hefjast með nægum fyrirvara fyrir forsetakosningarnar 2028. Hann segir einnig að hann hafi að undanförnu starfað fyrir þingmanninn Eric Burlison að UAP-málum á bak við tjöldin.

Geimsýran er í áskrift á http://patreon.com/Geimsýran  en þennan magnaða þátt má sjá á spilaranum hér fyrir neðan.