Pressan

Mistök Nike reyndust dýrkeypt – Hvað fór eiginlega úrskeiðis?

Mynd
Mynd/Getty

Nike hefur áratugum saman verið eitt allra öflugasta vörumerki heims. Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan prýddi merkið á leið sinni á toppinn og það sama má segja um íþróttamenn á borð við Tiger Woods og Cristiano Ronaldo.

En undanfarin ár hefur hallað undan fæti.

Sala hefur dregist saman, keppinautar hafa sótt á og hlutabréf Nike hafa fallið um 75 prósent á fimm árum. Í síðasta mánuði féll fyrirtækið úr S&P 100-vísitölunni yfir stærstu bandarísku stórfyrirtækin.

Nú er stóra spurningin hvort Nike geti endurheimt það forskot sem fyrirtækið byggði veldi sitt á og aftur orðið leiðandi afl í íþróttavöruheiminum.

Missti sjónar á því sem gerði Nike að Nike

BBC fjallar ítarlega um stöðu fyrirtækisins og ræðir meðal annars við Matt Powell, reyndan greinanda í íþróttavörugeiranum. Hann telur Nike hafa gert nokkur alvarleg stefnumótandi mistök á síðustu árum.

Eitt þeirra var að draga úr samstarfi við hefðbundnar verslanir og leggja stóraukna áherslu á að selja vörur beint til neytenda á netinu.

Á sama tíma gerði Nike eftirsótta skó aðgengilegri sem áður komu aðeins í takmörkuðu upplag og segir Powell að það hafi haft þveröfug áhrif við það sem fyrirtækið vonaðist eftir.

„Eftir því sem skórnir urðu aðgengilegri, þeim mun færri höfðu áhuga á þeim,“ segir Powell.

En mögulega voru alvarlegustu mistökin þau að Nike hægði á nýsköpun.

Undir stjórn John Donahoe, fyrrverandi forstjóra eBay, var mikil áhersla lögð á stafræna starfsemi og beina sölu. Að mati Powell kom það niður á vöruþróuninni.

„Þeir stöðvuðu í raun nýsköpunina í vörunum,“ segir hann og vísar til þess að því hafi jafnvel verið slengt fram í gríni að stjórnendurnir væru að reyna að breyta Nike í eBay.

Keppinautarnir nýttu tækifærið

Á meðan Nike reyndi að fóta sig með nýja stefnu breyttist markaðurinn hratt. Yngri fyrirtæki á borð við On og Hoka sóttu fram og tóku yfir hillupláss sem áður hafði nær sjálfkrafa tilheyrt Nike.

Það var sérstaklega táknrænt fyrir Nike. Fyrirtækið hafði nefnilega sjálft byggt veldi sitt á því að ögra rótgrónum keppinautum með nýjum hugmyndum.

Besta dæmið um það er líklega körfuboltakappinn Michael Jordan.

Þegar Nike samdi við Jordan um miðjan níunda áratuginn hafði hann ekki enn leikið leik í NBA-deildinni og Nike var langt frá því að vera ráðandi afl á körfuboltamarkaðnum.

Fyrirtækið lagði hins vegar allt undir, setti markaðsfé sitt fyrir körfubolta í Jordan og byggði síðar Air Jordan-vörumerkið í kringum hann.

Áhættan borgaði sig margfalt til baka og varð ein af undirstöðum Nike-veldisins.

Síðar fylgdu samningar við íþróttafólk á borð við Tiger Woods, Serenu Williams og Cristiano Ronaldo svo einhverjir séu nefndir.

Mbappé yfirgefur Nike eftir 20 ár

Þess vegna vakti það mikla athygli þegar Kylian Mbappé ákvað á dögunum að yfirgefa Nike eftir 20 ára samstarf og ganga til liðs við On.

Mbappé hafði verið hjá Nike frá níu ára aldri og var stærsta knattspyrnustjarna fyrirtækisins. Nike hefur einnig misst spænska undrabarnið Lamine Yamal til Adidas.

Tim Derdenger, fræðimaður á sviði markaðsmála og stefnumótunar, telur ákvörðun Mbappé jafnvel minna að einhverju leyti á ákvörðun Jordans fyrir rúmum fjórum áratugum.

Jordan valdi Nike meðal annars vegna þess að þar gat hann orðið andlit vörumerkisins í stað þess að vera ein stjarna af mörgum hjá stærri keppinautum.

Nú gæti Mbappé séð sambærilegt tækifæri hjá On.

Frakkinn sagði sjálfur eftir skiptin að þar yrði hann „umkringdur frumkvöðlum sem dreymir um sömu hluti og mig“. Í umfjöllun BBC kemur fram þessi orð séu kannski óþægileg áminning fyrir Nike sem eitt sinn var þekkt fyrir nýsköpum umfram allt annað.

Kína stórt vandamál

Vandamál Nike eru þó mun stærri en brotthvarf einstakra íþróttastjarna.

Tekjur fyrirtækisins á síðasta ársfjórðungi námu 11 milljörðum dala og voru undir væntingum greinenda. Sérstaklega hefur gefið á bátinn í Kína þar sem tekjur drógust saman um 26 prósent.

Sala Jordan-vörumerkisins hefur einnig minnkað á heimsvísu.

Elliott Hill, forstjóri Nike, viðurkennir að fyrirtækið hafi sett of mikið magn af sígildu Jordan-skónum á markað og þannig dregið úr sérstöðu þeirra. Nú stendur til að minnka bæði framboðið og tíðni útgáfa.

Nike gerir ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í tekjum á komandi fjárhagsári og ætlar að skera niður kostnað um 2,5 milljarða dala fram til ársins 2031. Því mun fylgja fækkun starfa.

Viðbrögð fjárfesta við nýjasta uppgjörinu voru hörð og hlutabréf Nike féllu um meira en átta prósent í viðskiptum eftir lokun markaða.

Risinn er þó langt frá því fallinn

Það væri engu að síður ótímabært að afskrifa Nike, að því er segir í umfjöllun BBC.

Fyrirtækið er enn stærsta og eitt þekktasta íþróttavörumerki heims og nýtur gríðarlegrar tryggðar meðal neytenda. Elliott Hill, sem sneri aftur til fyrirtækisins eftir starfslok, hefur nú það verkefni að endurvekja nýsköpunina og gera vörurnar eftirsóttar á ný.

Powell telur að viðsnúningsáætlunin geti farið að skila sýnilegum árangri á næsta ári. Hann efast þó um að Nike endurheimti nokkurn tíma þá yfirburðastöðu sem fyrirtækið áður hafði.

„Verður Nike aftur sá risi sem það eitt sinn var? Ég held ekki. Getur vörumerkið aftur náð vexti og arðsemi? Já.“