Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur hafið á ný leit að fyrrverandi slökkviliðsmanni í Kaliforníu sem hvarf fyrir rúmum þremur árum.
Maðurinn var þá ákærður fyrir vörslu myndefnis sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum en skömmu síðar var talið að hann hefði drukknað í bátslysi.
Nú telur FBI mögulegt að hann hafi sviðsett eigin dauða.
Maðurinn heitir Charles Johnathen Harris og starfaði áður sem slökkviliðsmaður í Alameda-sýslu. Alríkiskviðdómur ákærði Harris í mars 2023 fyrir vörslu myndefnis sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Yfirvöld höfðu meðal annars fengið ábendingar um að hann hefði hlaðið slíku efni inn á samfélagsmiðla á meðan hann var við störf á slökkvistöðvum í Alameda-sýslu.
Harris átti yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi og 250 þúsund dollara sekt. Handtökuskipun var gefin út á hendur honum í apríl sama ár.
Skömmu síðar tók málið hins vegar óvænta stefnu. Talið var að Harris hefði drukknað í bátaslysi á Suisun-flóa og leitinni að honum lauk án þess að hann fyndist.
Nú, meira en þremur árum síðar, hefur FBI ástæðu til að ætla að Harris kunni enn að vera á lífi. Alríkislögreglan hefur því endurnýjað ákall sitt til almennings um upplýsingar sem gætu varpað ljósi á ferðir hans og dvalarstað.
Lögfræðingurinn og álitsgjafinn Steven Clark segir mögulegt að nýjar ábendingar, þar á meðal um að sést hafi til Harris, hafi orðið til þess að málið var tekið upp að nýju.
Hann segir jafnframt afar erfitt að hverfa sporlaust til lengri tíma í nútímasamfélagi. Alríkisyfirvöld muni meðal annars kanna hvort einhver merki séu um að Harris hafi haft samband við ættingja eða aðra nákomna eftir hina meintu drukknun.
Clark varar einnig við því að hafi einhverjir aðstoðað Harris við að halda sig í felum geti þeir sjálfir átt yfir höfði sér alvarlegar afleiðingar. Að sögn hans getur það varðað allt að fimm ára fangelsi að skjóta skjólshúsi yfir eftirlýstan mann eða aðstoða hann við að komast undan alríkisyfirvöldum.
FBI biðlar nú til allra sem kunna að hafa upplýsingar um Harris eða hvar hann sé niðurkominn að hafa samband við yfirvöld.