fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
Pressan

Ranghvolfdi augunum yfir ummælum bandaríska fjármálaráðherrans – „Ég meinti það sem ég sagði“

Pressan
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 15:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisráðherra Kanada, Mark Carney, stendur við allt sem hann sagði í eftirminnilegri ræðu á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos á dögunum. Þetta hefur hann sagt Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann hefur lítið fyrir fullyrðingar bandaríska fjármálaráðherrans Scott Bessent um annað. Þetta kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar.

Bessent hélt því fram í samtali við fréttastofu FOX að Carney hefði dregið í land með allt sem hann sagði í ræðu sinni þegar hann ræddi við Donald Trump símleiðis á mánudaginn.

Carney segir þetta af og frá og ranghvolfdi augum yfir spurningu um ummæli Bessent: „Svo það sé alveg á hreinu, og þetta hef ég sagt forsetanum, meina ég það sem ég sagði í Davos“.

Forsætisráðherrann segir að Trump hafi hringt í hann á mánudaginn og þeir ræddu saman í um hálftíma. Þar hafi Carney útskýrt fyrir honum eðli samninga sem Kanada var að gera við Kína og eins tilkynnt forsetanum að fleiri samningar væru fram undan við lönd í fjórum heimsálfum. Carney segist ætla að ganga frá 12 samningum á næsta hálfa árinu.

Bessent lýsti símtalinu með öðrum hætti í samtali við FOX. Hann sagði að Carney hefði dregið hressilega í land með „óheppileg ummæli hans í Davos“ og fullyrti að Kanada muni áfram reiða sig á viðskipti við Bandaríkin.

Carney segir að þeir Trump hafi einnig rætt um stöðuna í Úkraínu, Venesúela og öryggi Norðurslóða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna áttu að setja kaffikorg í klósettið

Þess vegna áttu að setja kaffikorg í klósettið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn – Kaffi og te eru nánast eins og skjöldur gagnvart þessum sjúkdómum

Ný rannsókn – Kaffi og te eru nánast eins og skjöldur gagnvart þessum sjúkdómum