fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Hörmulegar fréttir af unga piltinum sem var bitinn af hákarli

Pressan
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tólf ára pilti sem slasaðist alvarlega í hákarlaárás í Nielsen Park í Sydney á sunnudag er ekki hugað líf. Pilturinn, Nico Antic, missti mikið blóð þegar hann var bitinn illa í báða fætur.

Mail Online greinir frá því að grunur leiki á að svokallaður nautháfur (e. bull shark) hafi ráðist á Antic þegar hann var að stökkva fram af klettum ofan í sjóinn með nokkrum vinum sínum.

Nautháfurinn heldur sig einkum í hlýju og grunnu vatni, oftar en ekki upp við ströndina, og er hann mjög árásargjarn.

Mail Online ræddi við aðstandanda Antic sem segir að honum sé haldið lifandi í öndunarvél en læknar sjái engin merki um heilastarfsemi. Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskylduna og hefur hún gengið vonum framar.

Hákarlaárásir hafa verið áberandi undan ströndum Ástralíu síðustu daga.

27 ára karlmaður, Andre de Ruyter, slasaðist alvarlega á mánudagskvöld þegar hann var bitinn af hákarli í sjónum í Manly, norðurhluta Sydney. Hann dvelur á sjúkrahúsi og er ástand hans sagt stöðugt.

Í gær varð svo 39 ára brimbrettakappi fyrir árás hákarls en hann þótti sleppa vel. Hákarlinn náði að bíta í brimbretti hans og slapp hann með skrámur á síðunni. Á mánudag lenti svo ellefu ára drengur sem var að leik í sjónum í svipuðu atviki. Hákarl beit í brimbretti sem drengurinn synti á en hann slapp án meiðsla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir