fbpx
Sunnudagur 15.mars 2026
Pressan

Smábærinn sem Pútín gæti notað sem afsökun til að ráðast á NATO

Pressan
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhyggjur hafa aukist meðal vestrænna sérfræðinga um að Rússland kunni að beina sjónum sínum á næstunni að austurjaðri NATO, jafnvel þótt átökum í Úkraínu kunni að linna á næstu misserum.

Einkum hefur verið bent á bæinn Narva í Eistlandi, sem liggur beint að landamærum Rússlands.

Daily Mail ræddi á dögunum við Tim Willasey-Wilsey, fyrrverandi diplómat og prófessor við King’s College í London, sem segir að jafnvel þótt vopnahlé náist í Úkraínu sé ekki víst að spennan komi til með að minnka. Telur hann að Rússar gætu látið reyna á samstöðu NATO með litlum aðgerðum fremur en opnum hernaði. Narva sé í því samhengi sérstaklega viðkvæmur staður.

Narva er lítill bær í austurhluta Eistlands og er aðeins aðskilinn frá Rússlandi með á. Mikill meirihluti íbúa bæjarins talar rússnesku og er af rússnesku bergi brotinn og margir eiga fjölskyldu hinum megin landamæranna.

Bærinn varð hluti af sjálfstæðu Eistlandi eftir fall Sovétríkjanna, en tengsl hans við Rússland hafa haldist sterk.

Sérfræðingar benda á að lýðfræðileg staða Narva geri hann að hugsanlegu skotmarki fyrir Rússland. Gætu stjórnvöld í Moskvu reynt að réttlæta aðgerðir með vísan til verndar rússneskumælandi íbúa. Slíkt hefur áður verið notað sem rök, til dæmis þegar Rússar innlimuðu Krímskaga.

Fátt bendir til þess að stríðið í Úkraínu sé á lokametrunum og segja Úkraínumenn að Rússar séu raunar orðnir stórtækari í árásum sínum á óbreytta borgara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að valda konu fósturláti með því að setja sterkt verkjalyf í lasagna

Reyndi að valda konu fósturláti með því að setja sterkt verkjalyf í lasagna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Barin til óbóta í ástarhreiðrinu sem elskhuginn hafði útbúið – „Ég veit ekki við hverju ég á að búast á morgun“

Barin til óbóta í ástarhreiðrinu sem elskhuginn hafði útbúið – „Ég veit ekki við hverju ég á að búast á morgun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íranar birta ógnvekjandi myndband af vopnabúri sínu

Íranar birta ógnvekjandi myndband af vopnabúri sínu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nemandinn sem ók yfir kennarann sinn rýfur þögnina

Nemandinn sem ók yfir kennarann sinn rýfur þögnina