fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

Var rekinn frá Gucci fyrir að vera „of feitur“

Pressan
Mánudaginn 19. janúar 2026 12:30

Ashton Kutcher

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher starfaði á árum árum sem fyrirsæta og segir hann tískurisann Gucci hafa rekið hann fyrir að vera of þungur.

Í nýju viðtali við Entertainment Tonight minntist Kutcher þess að hafa verið bókaður í  herferð hjá lúxushönnunarhúsinu,  sem Tom Ford rak á þeim tíma, og flogið til Ítalíu fyrir myndatöku.

„Og ég mætti, ég flaug til Ítalíu fyrir tískusýninguna og hann setti mig í, eins og, bleikan Speedo,“ sagði Kutcher og sagðist hafa verið 178 pund á þeim tíma, 89 kíló.

Ford var þó ekki sáttur að sögn Kutcher: „Hann er of feitur. Og svo var ég rekinn.“

Kutcher, sem nú er 47 ára, viðurkenndi að hann og hinn frægi hönnuður líti til baka á atvikið með spaugilegum hætti.

„Ég hlæ með honum að þessu núna og hann segir: „Þú varst of feitur.“ Ég hugsaði: „Gaur, ég var 89 kíló ! Um hvað ertu að tala?“ hló Kutcher.

„Hann hafði ákveðna sýn sem hann vildi, sem hann vildi sjá, í augum hans var þetta rétt ákvörðun,“ útskýrði Kutcher um afstöðu Ford. „Það þýddi ekki að ég væri minna virði, heldur að ég væri það ekki fyrir hann á þeirri stundu.“

Kutcher, sem tók fram að hann hefði byrjað að starfa sem fyrirsæta um 19 ára aldur, útskýrði einnig að jafnvel „sumir af fallegustu einstaklingum í heimi“ upplifi óöryggi.

„Það sem ég áttaði mig mjög fljótt á var að allir voru óöruggir,“ sagði hann um störf sín sem atvinnufyrirsæta.

„Allir. Ef þið horfið nógu lengi í spegilinn, þá munið þið finna eitthvað sem ykkur líkar ekki, eða sem ykkur finnst að gæti verið betra, eða sem ykkur finnst að gæti verið öðruvísi.“

Í fyrra viðurkenndi Kutcher einnig að fyrirsætuútlit hans hefði stundum skaðað leiklistarferil hans.

„Það eru hlutverk sem ég hef fengið vegna þess hvernig ég lít út og það eru hlutverk sem ég hef ekki fengið vegna þess hvernig ég lít út,“ sagði hann á pallborðsumræðum á New York Comic Con í október. „Stundum er það pirrandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir