fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Pressan

„Ef við tökum ekki Grænland þá munu Rússar eða Kínverjar gera það“

Pressan
Mánudaginn 12. janúar 2026 08:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að NATO þurfi meira á Bandaríkjunum að halda en Bandaríkin á NATO. Ef hugsanleg yfirtaka Bandaríkjanna á Grænlandi hefur neikvæð áhrif á starf bandalagsins verður svo að vera.

Þetta sagði Trump í gær þar sem hann virtist herða enn á kröfum sínum um að Bandaríkin næðu yfirráðum yfir Grænlandi. Sagði Trump að honum væri alveg sama þó að slík yfirtaka setti starf NATO í uppnám.

„Ef það hefur áhrif á NATO, þá hefur það áhrif á NATO. En þeir þurfa miklu meira á okkur að halda en við á þeim, ég get alveg sagt ykkur það.“

Trump hefur að undanförnu ýjað að því að hann hafi áhuga á að kaupa Grænland og var hann spurður að því í gær hvort hann væri búinn að leggja fram einhvers konar tilboð. Trump sagðist ekki hafa gert það enn sem komið er.

„En Grænland ætti að gera samninginn, því Grænland vill ekki sjá Rússland eða Kína taka yfir,“ sagði hann og bætti svo síðar við: „Ef við tökum ekki Grænland þá munu Rússar eða Kínverjar gera það. Og ég ætla ekki að leyfa það, með einum eða öðrum hættum munum við fá Grænland.“

Trump viðurkenndi að viðbrögðin gætu orðið hörð en gaf þó í skyn að NATO væri mögulega ekki ómissandi.

„Kannski yrði NATO ósátt ef ég gerði þetta… við myndum spara helling af peningum. Mér líkar NATO. En ég velti því fyrir mér hvort NATO myndi vera til staðar fyrir okkur ef á þyrfti að halda. Ég er ekki viss um það,“ sagði Trump.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur

Samverkakona Epsteins segir að 25 karlmenn hafi gert þöggunarsamninga við þolendur
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

„Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“

Símtal Trump við lögreglu árið 2006 afhjúpað í Epstein-skjölunum – „Guði sé lof að þið ætlið að stoppa hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl

Ákærður fyrir að geyma dauða hvolpa og unga konu í flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina

Rússar með mann í haldi sem er grunaður um skotárásina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir

Á að leyfa köttum og hundum að sofa upp í? – Þetta segir dýralæknir