Pressan

Úkraínumenn hafa fundið aðferð til að berjast við Rússa langt frá Úkraínu – „Þetta er mikilvægt“

Mynd
Úkraínskir hermenn á vígvellinum.

Það getur komið sér vel fyrir Úkraínumenn að þeim hefur tekist að flytja stríðið gegn Rússlandi til annarra heimsálfa segir sérfræðingur á grunni nýrra upplýsinga um samvinnu Úkraínumanna við lönd víða um heim.

Úkraínskir drónasérfræðingar eru að störfum í fjarlægum löndum til að berjast við rússneska hermenn. Sumir eru í fjarlægjum eyðimörkum og aðrir eru við Persaflóa og aðstoða ríki þar við að verjast sprengjuárásum Írana.

Peter Viggo Jakobsen, lektor við danska varnarmálaskólann, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að allt sé þetta hluti af stærri áætlun.

Til að fá yfirsýn yfir þessa áætlun er best að líta til umfjöllunar CNN um málið en hana byggir miðillinn á upplýsingum frá úkraínskum hermönnum og herforingjum.

Um 15 drónasérfræðingar eru að störfum í eyðimörk í Malí og enn aðrir eru að störfum í Súdan. Þá hafa úkraínskir sérfræðingar þjálfað hermenn frá Tjad, Níger og Búrkína Fasó í notkun dróna.

Þess utan eru úkraínskir drónasérfræðingar að störfum í minnst fimm ríkjum í Miðausturlöndum til að aðstoða við varnir gegn írönskum Shahed-drónum en Úkraínumenn hafa mikla reynslu af að takast á við þá því Íranir hafa látið Rússum slíka dróna í té.

Jakobsen sagði að þegar þetta er skoðað heildrænt sýni það hvernig Úkraínumenn nota drónaþekkingu sína og reynslu í pólitískum tilgangi. „Þetta sýnir að Úkraína neyðist ekki lengur til að nota öll sín úrræði til að verja landið. Nú geta Úkraínumenn notað úrræði sín, sérstaklega tengd drónum, til að hjálpa öðrum löndum og þar með gera samstarfssamninga sem geta veitt þeim meiri alþjóðlegan stuðning,“ sagði hann.

Hann sagði þetta mikilvægan lið í tilraunum Úkraínumanna til að grafa undan Rússum og veikja stöðu þeirra varðandi stríðið í Úkraínu.

„Rússar þéna töluvert á því að senda hermenn hingað og þangað til að styðja stjórnvöld víða í Afríku. Ef Úkraínumenn fjarlægja þessa tekjulind og gera út af við rússnesk áhrif í til dæmis Afríku um leið, þá er það stór ávinningur fyrir þá. Þess vegna er það skynsamlegt að þeir reyna að veikja Rússland og sýna Afríkuríkjum að þau geta ekki reiknað með að vinna átök með því að fá hjálp frá Rússum,“ sagði Jakobsen.