Pressan

Þess vegna á ekki að skræla ávexti og grænmeti

Mynd
Grænmeti virðist vinna gegn blöðruhálskrabbameini. Mynd/Getty

Þarf virkilega að sjóða frosin ber áður en þau eru borðuð eða drukkin? Á að skræla epli og gulrætur?

Ávextir og grænmeti eru góð uppspretta vítamína, steinefna, trefja og andoxunarefna en fæst borðum við líklega nóg af þeim.

Til að fá sem mest út úr neyslunni á ávöxtum og grænmeti er mikilvægt að meðhöndlunin sé rétt.

Svona á að meðhöndla ávexti og grænmeti:

Sjóddu frosin ber – Það er mikilvægt að sjóða frosin ber, þau sem eru keypt í verslunum, áður en þau eru notuð í blöndur eða annað. Mælt er með að þau séu soðin í að minnsta kosti eina mínútu áður en þau eru borðuð.

Í umfjöllun Videnskab.dk kemur fram að ástæðan fyrir þessu sé hættan á veirum. Á síðasta áratug herjaði nóróveirufaraldur á mörg ríki Evrópu auk lifrarbólgu A. Uppruninn var rakin til frosinna berja, sérstaklega hindberja.

Veirur geta borist í berin með menguðu vatni á ræktunartíma þeirra.

Það er sjaldgæft að veirur berist í berin en það er samt sem áður rétt að sjóða þau áður en þeirra er neytt.

Það leysir ekki allan vanda að frysta berin. Frostið getur haldið aftur af bakteríum og veirum en drepur þær ekki endilega. Þess vegna getur smit leynst í berjum þrátt fyrir að þau hafi verið fryst.

Mundu að skola – Flestir vita að hrátt kjöt og fiskur getur gert okkur veik ef hreinlætið er ekki í góðu lagi en margir vanmeta áhættuna sem tengist ávöxtum og grænmeti.

Í umfjöllun Videnskab.dk kemur fram að tíundi hver Dani veikist árlega eftir að hafa borðað mat sem er hugsanlega hættulegur. 46% tilfellanna má rekja til ávaxta og grænmetis.

Megnið af ávöxtum og grænmeti er ræktað úti í náttúrunni þar sem það kemst í snerting við skordýr og fugla. Þess vegna geta getur óskolað grænmeti og ávextir innihaldið fjölda skaðlegra efna á borð við bakteríur, sveppi, veirur og skordýraeitur.

Það er best að skola ávexti og grænmeti vel undir köldu rennandi vatni og best er að hafa þetta í höndunum á meðan. Nuddaðu þetta með höndunum til að fjarlægja drullu, skordýraeitur og yfirborðsbakteríur. Þvoðu þetta þar til yfirborðið virðist ekki lengur vera skítugt.

Það á aldrei að þvo ávexti og grænmeti með uppþvottalegi því ávöxturinn getur þá dregið efnin í sig og það breytir ekki bara bragðinu, það gerir þetta að hættulegum matvælum.

Ef þú ætlar að láta ávexti eða grænmeti liggja í vatni, skaltu nota hreina skál en ekki eldhúsvaskinn sem getur verið fullur af bakteríum.

Ekki skræla – Margir skræla eða taka utan af ávöxtum og grænmeti en oft er það ekki nauðsynlegt. Þvert á móti eru mikilvæg næringarefni í hýðinu.

Ekki skemmir fyrir að þú leggur þitt af mörkum til að stemma stigum við matarsóun með því að borða hýðið.

Bandaríska landbúnaðarráðuneytið segir að óskræld epli innihaldi miklu meira af næringarefnum en skræld, 15% meira C-vítamín, 267% meira K-vítamín, 20% meira kalsíum, 19% meira kalíum og 85% meira af trefjum.

Ef þú skolar ávexti og grænmeti vel, þá er engin ástæða til að fjarlægja hýðið.