Pressan

Svona virkjar þú náttúrulegu þyngdartapshormóna líkamans - Þeir sem Wegovy byggist á

Mynd
Wegovy er byggt á umræddum hormónum. Mynd/Getty

Megrunarlyfið Wegovy er í raun eftirlíking af náttúrulegum þyngdartapshormónum líkamans. Það er hægt að virkja þessa hormóna og segir sérfræðingur að ef þú fylgir fjórum einföldum ráðum, þá verði áhrifin mikil og jákvæð.

Þetta kemur fram í umfjöllun Jótlandspóstsins sem ræddi við Anette Sams, sem starfaði í 15 ár við lyfjarannsóknir og lyfjaþróun hjá danska lyfjaframleiðandanum Novo sem framleiðir einmitt Wegovy.

Sams sagði að það sé hægt að ná sömu áhrifum og Wegovy með því að virkja hið náttúrulega þyngdartapshormón GLP-1 án þess að nota dýr megrunarlyf.

Hún sagðist telja að fólk hafi gert það alltof flókið að léttast, miklu flóknara en það þurfi að vera. Hún benti á að líkamar fólks séu mismunandi en að leiðin til náttúrulegs og varanlegs þyngdartaps þurfi ekki, fyrir langflesta, að vera svo flókin.

„Það er þrennt sem er mikilvægt. Eitt er að halda blóðsykrinum í jafnvægi, annað er að þarmaflóran sé góð og það þriðja er að mynda þyngdartapshormón. Þyngdartapshormónin hjálpa þér að hafa stjórn á matarlystinni og stöðugan blóðsykur en stöðugur blóðsykur hefur mikil áhrif á matarlystina og orkustig líkamans. Þarmaflóran er nauðsyn fyrir tvö fyrstu atriðin,“ sagði hún.

Þetta virðist kannski vera svolítið mál en er í raun einfalt og ef þú heldur þig við ráðin fjögur frá Sams, þá ertu á réttri leið.

Borðaðu bara þrjár máltíðir á dag

Tvennt er mikilvægt varðandi mataræðið ef maður vill léttast. Annað er að reyna að takmarka neysluna við þrjár aðalmáltíðir á dag.

Númer tvö er að máltíðirnar eiga að samanstanda af svo miklu af óunnum matvælum og hægt er. Ofurunnar matvörur eru hannaðar til að vera auðmeltar og veita þar með skjóta mettunartilfinningu sem varir í skamma stund.

Óunnin matvara með heilum plöntufrumum gerir hins vegar meiri kröfur til meltingarkerfis líkamans. Löng melting á óunnum matvælum lætur líkamann til að losa um GLP-1 þyngdartapshormónið og tryggir stöðugt blóðsykurmagn án stórra og skyndilegra sveiflna. Á matardisknum á um 75% máltíðarinnar að vera grænmeti og 25% góðar fitu- og prótínuppsprettur.

Mundu eftir púlsinum

Maður á að ganga, hlaupa, hjóla, synda eða stunda einhverja aðra hreyfingu í minnst 30 mínútur á dag. Þetta vita flestir en svo er annað mál hvort þeir geri þetta. Sams sagði að þessu til viðbótar eigi fólk að reyna að koma púlsáreynslu inn í dagskrána að minnsta kosti fjórum sinnum á dag.

Þetta getur verið eitthvað svo einfalt eins og að ganga hratt upp og niður stigann í vinnunni. Margir vinna kyrrsetuvinnu og því er mikilvægt fyrir þá að standa upp og koma blóðrásinni á hreyfingu nokkrum sinnum yfir daginn. Auk hins augljósa ávinnings af slíkri hreyfingu hvað varðar hitaeiningabrennslu og vöðvastyrkingu, þá losar þetta einnig um efni sem gera að verkum að enn meira af GLP-1 hormónið losnar.

Sjö til níu klukkustunda svefn

Samfelldur svefn í sjö til níu klukkustundir á hverri nóttu gerir að verkum að líkaminn getur lagað eitt og annað hjá sjálfum sér, líka það sem hár blóðsykur veldur. Fæstir borða á meðan þeir sofa og því nær líkaminn í raun að fasta og það gerir honum auðveldara fyrir við að halda blóðsykurmagninu í jafnvægi daginn eftir. Fastan veitir einnig glukagon, sem er einnig þyngdartapshormón, góðan tíma til að vinna án truflana.

Farðu í kalt bað

Það er sjaldan sem okkur nútímafólkinu er kalt. Vetrarböð eða kaldar sturtur brenna hitaeiningum og geta virkjað brúnu fitu líkamans svo maður getur sjálfur haldið líkamanum náttúrulega heitum og notað orku til þess.

Það er algjör misskilningur að allt lífið eigi að vera þægindi ein saman. Ef maður fer í gegnum lífið og gerir bara þægilega hluti, þá glata góðu hlutirnir gildi sínu. Að borða góða máltíð er miklu betra þegar maður er svangur. Að setjast í sófann er miklu betra þegar maður er nýbúinn að hlaupa. Að hlýna er dásamlegt þegar manni hefur verið kalt.