Pressan

Nýtt bandarískt vopn „eyðir ógnum með ljóshraða“

Mynd
Tækið getur eytt drónum á örskotsstundu. Mynd:Getty

Með nýrri tækni er hægt að eyða drónum fyrir sáralitla upphæð, fræðilega séð, af því að það er eitt vandamál sem þarf að leysa.

Nýlega flugu þrír drónar, frá mexíkóskum eiturlyfjahringum, yfir Texas þegar dularfullur geisli sendi þá skyndilega til jarðar. Bak við geislann er ný tækni, tækni sem var eitt sinn flokkuð sem vísindaskáldskapur en er nú að verða raunveruleika í nútíma hernaði.

Geislinn kom frá Locust sem er nýjast vopn Bandaríkjamanna í baráttunni við ódýra dróna. The Times skýrir frá þessu.

Þetta er öflugt laservopn sem getur að sögn framleiðandans „eytt ógnum með ljóshraða“.

Eitt af því sem vopnaframleiðendur hafa unnið hörðum höndum að síðustu misserin er að þróa ódýrar lausnir til að verjast drónum því það er dýrt að skjóta þá niður með flugskeytum. Lausnin á þessu getur verið laser.

Stríð Bandaríkjanna við Íran hefur verið mjög dýrt, sérstaklega hvað varðar notkun Patriot-flugskeyta. Hvert og eitt kostar um 4 milljónir dollara en til samanburðar má nefna að drónarnir, sem þau granda, kosta 20.000 til 50.000 dollara.

Þetta reikningsdæmi gengur ekki upp og því hefur bandaríska varnarmálaráðuneytið eytt einum milljarði dollara árlega í þróun laservopna.

Fræðilega séð getur laservopn eins og Locust skotið litla dróna niður og kostar skotið aðeins nokkra dollara. Þetta hafa fleiri en Bandaríkjamenn uppgötvað, til dæmis gerðu Bretar tilraunir með laservopnið DragonFire fyrir tveimur árum. Það skaut dróna niður og var kostnaðurinn við vopnið 10 pund fyrir hverja sekúndu sem það var virkt.

Kínverjar eru að koma sér upp laservopnum til loftvarna og Ísraelsmenn nota laservopnið Iron Beam í Iron Dome varnarskildi sínum.

En Locust glímir við eitt vandamál og það er loftraki. Hann kemur sér mjög illa fyrir laservopn. Það sama á við um rigningu, þoku og slyddu því geislinn þarf að vera samhangandi til að geta brennt sig í gegnum skotmarkið.

Annað vandamál er að lasergeislinn þarf að hita hvert skotmark í ákveðinn tíma til að eyðileggja það. En á móti kemur að laservopn verður aldrei uppiskroppa með skotfæri svo lengi sem það fær nóg rafmagn.