Á köldum janúarmorgni 1996 var Song Xuewen, tvítugur byggingaverkamaður, á leið til vinnu í Jilin-héraðinu í Kína þegar hann sá eitthvað glampandi í snjónum. Þetta líktist lyklakippu eða málmkeðju. Hann tók hlutinn upp og vonaðist til að geta fundið eigandann í kaffihléinu sínu.
Aðeins tveimur klukkustundum síðar hrundi hann niður.
Ástæðan var að það sem hann tók upp var Iridium-192 sem er gríðarlega geislavirkt efni sem er notað við ákveðna iðnaðarframleiðslu.
Innan tveggja klukkustunda fann Song fyrir mikilli ógleði, svima og byrjaði að kasta upp. Þegar yfirmenn hans sáu hvað hann hafði fundið áttuðu þeir sig strax á hvað hafði gerst.
Geislunin sem líkami hans varð fyrir var gríðarlega mikil. Á nokkrum dögum byrjaði vefur að drepast. Song fór í sjö stórar aðgerðir þar sem báðir fætur hans og vinstri handleggur voru teknir af honum. Hann hélt hægri höndinni en taka þurfti alla fingurna nema vísifingurinn af.
Þvert á allar líkur lifði hann af og lifði í rúmlega 20 ár. En það sem virtist sárasaklaust, að taka glampandi hlut upp, varð honum að lokum að bna.
Song var iðinn við að vekja athygli á hættunni sem stafar frá geislavirkum efnum og hættunni sem getur skapast þegar hlutir, sem eru notaðir við iðnaðarframleiðslu, glatast eða liggja á almannafæri.
Song lést 2019. Það var skyndiákvörðun á janúarmorgni sem breytti lífi hans. Hann hafði ekki hugmynd um hvað það var sem hann tók upp og það var einmitt það sem gerði það svo hættulegt.