Pressan

Góðar fréttir fyrir bókaunnendur – Hálftíma lestur á dag getur lengt lífið

Mynd
Bókalestur er skemmtilegur og góður fyrir heilsuna og ævilengdina.

Vísindamenn hafa árum saman rannsakað hvaða áhrif ýmis hugræn verkefni hafa á heilann. Meðal þess sem þeir hafa komist að er að fólk, sem heldur heilanum reglulega við efnið, á síður á hættu að glíma við minnisvandamál og hugræna afturför þegar aldurinn færist yfir það. Þetta kemur fram í rannsókn sem var birt í vísindaritunum International Psychogeriatrics og Neurology.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Cochrane Library, kemur fram að margt bendi til að heilinn geti byggt upp einhverskonar mótspyrnu sem gerir hann betur í stakk búinn til að takast á við aldurstengdar breytingar.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Frontiers in Public Health, kemur fram að hugræn verkefni geti dregið úr stressi og dregið úr líkunum á einmanaleika og þunglyndi hjá miðaldra og eldra fólki. Þess utan getur þetta eflt einbeitinguna og gert fólki auðveldara fyrir við að aftengjast skjám og öðrum truflunum hversdagsins.

Rannsóknir hafa einnig leitt í ljós að lestur getur lengt lífið. Ekkert hefur komið fram sem bendir til að einhver ákveðin tegund lesefnis sé betri en aðrar í þessu samhengi. Það virðist skipta mestu máli að gera lesturinn að reglulegum hluta af hinu daglega lífi.

Í stórri rannsókn, sem vísindamenn við Yale háskólann gerðu og hefur verið birt í vísindaritinu Social Science & Medicine, var fylgst með 3.635 manns, eldri en 50 ára, í 12 ár.

Í ljós kom að þeir sem lásu bækur í minnst 30 mínútur á dag, lifðu að meðaltali 23 mánuðum lengur en þeir sem lásu ekki bækur.

Niðurstaðan var hin sama þegar búið var að taka tillit til aldurs, kyns, menntunar og heilsufars.

Ekki var að sjá að sami ávinningur væri af því að lesa dagblöð og tímarit.