Pressan

Elizabeth var kyrkt – Morðinginn blekkti lögregluna upp úr skónum

Mynd
Elizabeth.

Það var ást við fyrstu sýn þegar Elizabeth Harrington kom til litla bæjarins Fredericksburg í Virginíu í Bandaríkjunum í fyrsta sinn. Hún var með góða menntun og listakona að auki. Hún hafði glímt við þunglyndi um langa hríð og taldi að nýtt umhverfi myndi gera henni gott. Hún ætlaði að segja skilið við gamla lífið og byrja upp á nýtt og taldi Fredericksburg vera rétta staðinn til þess.

Fredericksburg kom við sögu í borgarastyrjöldinni og er bærinn nú þekktur fyrir fallegar gamlar byggingar og lága glæpatíðni. En eftir nokkurra vikna búsetu í bænum var líf Elizabeth á enda. Hún fannst myrt og ljóst var að henni hafði verið misþyrmt áður en hún var kyrkt til bana.

Lögreglan taldi í fyrstu að hún hefði orðið fórnarlamb kynferðisglæpamanns. En sannleikurinn var ekki svo augljós og málið var flókið og það liðu átta ár þar til morðinginn náðist loksins eftir röð undarlegra tilviljana.

Var óvirkur alkóhólisti

Neva Harrington, 76 ára móðir Elizabeth, sagði að dóttir hennar hafi tekist á við þunglyndið með því að drekka áfengi en hafi síðan farið í meðferð og hafi lokið henni og alfarið hætt áfengisneyslu.

„Ég var svo stolt af henni. Auðvitað hafði ég smá áhyggjur en hún var með mentor, félagsráðgjafann Dawn Briccetti, sem fylgdist með henni. Mér fannst að hún hefði aldrei verið í betri höndum,“ sagði Neva.

Dag einn í nóvember 1994 kom Dawn heim til Elizabeth í sína daglegu heimsókn. Henni brá mjög við að útidyrnar voru ólæstar og þegar hún opnaði þær sá hún að heimilið, sem var alltaf mjög hreint og fínt, var í rúst. „Ég hrópaði nafn hennar nokkrum sinnum en fékk ekkert svar,“ sagði Dawn.

Þegar hún gekk inn í svefnherbergið blasti hryllileg sjón við henni. Elizabeth lá á grúfu og hafði verið kyrkt með silkiklút. Höfuðið var blóðugt og miklir áverkar voru á því.

Lögreglumaðurinn Jeff Lippincott kom fljótlega á vettvang. „Líkami hennar lá þannig, og buxurnar voru dregnar niður um hana, að ég taldi að hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi,“ sagði hann.

En við krufninguna fundust engar sæðisleifar. Fatnaður hennar og sængurfatnaður var sendur til sérfræðirannsóknar í von um að hægt yrði að finna líkamsvessa úr morðingjanum.

Því næst hófst lögreglan handa við að kortleggja síðustu klukkustundir Elizabeth.

Það var vitað að hún hafði verið með Matt, sem glímdi við áfengisvandamál og hún var að hjálpa, á barnum Merriman‘s í miðbæ Fredericksburg um kvöldið.

Matt var yfirheyrður og sagði hann að þau hefðu setið í bílnum hans um hríð og talað saman þar til hún fór inn til sín skömmu eftir klukkan 22.

Mynd
Elizabeth og Matt.

„Mér fannst sem hann vissi meira en hann sagði en án sannana neyddumst við til að sleppa honum,“ sagði Waverly Musselman, rannsóknarlögreglumaðurinn sem yfirheyrði Matt.

Fljótlega komu niðurstöður sérfræðirannsókna á fatnaði og sængurfatnaði Elizabeth og var lögreglan mjög hissa á að engir líkamsvökvar höfðu fundist.

Byrjaði lögreglan nú að vinna út frá kenningu um að morðinginn hefði ekki nauðgað Elizabeth, heldur hefði hann stillt líkinu upp á þennan hátt til að villa um fyrir lögreglunni.

Lögreglan gerði lista yfir hugsanlega gerendur en hafði ekki úr miklu að moða og óttaðist að morðinginn myndi komast upp með þetta.

Laug um árás

Fjórum árum eftir að Elizabeth var myrt tilkynnti Archie Talley, atvinnulaus kokkur, að ráðist hefði verið á hann.

Hann sagði að karl og kona hefðu beitt sig ofbeldi og hótað að myrða hann af því að hann var samkynhneigður. Hann sagði að konan hefði sagt að þau myndu gera það sama við hann og það sem þau gerðu við konu sem þau hefðu myrt. „Þau myrtu hana af því að hún var lesbía,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að þau hefðu sagt að konan hefði verið nær dauða en lífi þegar þau settu klút utan um háls hennar og þrengdu að.

Musselman tók þessar upplýsingar alvarlega því lögreglan hafði aldrei skýrt frá þessu. En þrátt fyrir ítarlegar yfirheyrslur færði framburður Archie lögregluna ekki nær því að leysa málið.

Mynd
Archie var ekki allur þar sem hann var séður.

Nokkrum árum síðar bað Doug Perkins, ungur lögreglumaður, um leyfi til að fá að taka við rannsókn málsins.

Hann fór yfir málsgögnin og lagðist vel yfir þau og sönnunargögnin.

Hann sá að eitt hár, sem fannst undir Elizabeth, hafði ekki verið sent í rannsókn og sendi það strax í DNA-rannsókn. Tækninni hafði fleygt svo mikið fram síðan Elizabeth var myrt að nú var hægt að fá skýra niðurstöðu um DNA morðingjans.

Þegar hún lá fyrir var hún keyrð í gagnagrunnum lögreglunnar og gaf samstundis fullkomna svörun.

Það var Archie Talley, maðurinn sem hafði fjórum árum áður sagst hafa hitt parið sem myrti Elizabeth.

Doug var steinhissa: „Archie Talley fór ekki leynt með samkynhneigð sína. Ég skildi ekki af hverju hann hefði átt að misþyrma og myrða Elizabeth.“

Málalok

Það var ekki erfitt að hafa uppi á Archie því hann sat í fangelsi í Rappahannock og beið réttarhalda vegna fíkniefnamisferlis.

Þegar Doug yfirheyrði hann og kynnti honum að DNA úr honum hefði fundist á morðvettvanginum þvertók hann fyrir að hafa verið að verki.

Hann vildi ekki láta blóðsýni í té en féllst að lokum á það.

Þegar farið var með hann á sjúkrahús til að taka blóðsýnið fékk Doug næstu vísbendingu. Archi sagðist þá þekkja Matt, manninn sem borðaði kvöldmat með Elizabeth kvöldið áður en hún var myrt. Hann sagði að Matt hefði verið ástmaður hans á þessum tíma.

Nú var komin ástæða fyrir morðinu.

Doug yfirheyrði Matt sem staðfesti að hann og Archie hefðu átt í ástarsambandi.

Elizabeth hafði verið myrt vegna þess hversu afbrýðisamur Archie var.

Unnusti Archie játaði síðan að Archie hefði játað fyrir sér að hafa myrt Elizabeth. Hann var hræddur við Archie og þorði því ekki að skýra lögreglunni frá þessu fyrr.

Archie Talley var dæmdur í 18 ára fangelsi árið 2002.