Pressan

Drekkur þú sykurlausa gosdrykki? – Ný rannsókn varpar ljósi á óvænt áhrif þeirra á líkamann

Mynd
Það eru gervisætuefni í mörgum gosdrykkjum. Mynd:Wikimedia Commons

Flestir þekkja eflaust að hafa langað mikið í eitthvað sætt að borða eða drekka og að það geti verið erfitt að standast freistinguna.

Þeir, sem hafa áhyggjur af þyngdinni, finna oft til sektartilfinningar ef þeir láta undan freistingunni.

Lengi hefur verið tekist á um hvort sykurlausir gosdrykkir séu lausn á þessu eða hvort þeir ýti jafnvel undir löngunina í eitthvað sætt.

Það hefur verið útbreidd skoðun að hitaeiningasnauðir drykkir og sætindi blekki bara líkamann til að langa enn meira í eitthvað sætt.

En niðurstaða nýrrar rannsóknar vísindamanna við Kaupmannahafnarháskóla varpar nýju ljósi á þetta. Þeir rannsökuðu áhrif drykkjarvara, sem innihalda hitaeiningasnauð sætuefni, á líkamann. Ekstra Bladet skýrir frá þessu.

Rannsóknin leiddi í ljós að sykurlausir drykkir geta dregið úr löngun fólks í ofþyngd í sætindi.

26 manns í yfirþyngd tóku þátt í rannsókninni. Þátttakendurnir fengu annað hvort vatn eða drykk með hitaeiningasnauðu sætuefni, eins og er til dæmis að finna í Cola Zero og Pepsi Max. Þátttakendurnir fengu ekki að vita hvað drykk þeir fengu.

Fólkið, sem fékk drykk með sætuefni, sagðist hafa fundið miklu minna fyrir löngun í eitthvað sætt á því hálfa ári sem rannsóknin stóð yfir.

„Það kom okkur á óvart að sjá svo skýrar niðurstöður hjá svona frekar litlum hóp. En munurinn á vatni og Cola Zero er greinilegur. Drykkurinn með sætuefninu dregur úr lönguninni í eitthvað sætt,“ sagði Anne Raben, meðhöfundur rannsóknarinnar, í samtali við Videnskab.dk.

Rétt er að taka fram að báðir hóparnir borðuðu sama matinn alveg óháð því hvaða drykk þeir fengu.

Þrátt fyrir þessa athyglisverðu niðurstöðu varar fagfólk við því að of miklar og skjótar ályktanir séu dregnar.  Til dæmis segir Per Bendix Jeppesen, lektor í læknisfræði við Árósaháskóla, að honum finnist rannsóknin ekki duga til að mælt sé með almennri notkun sætuefna fyrir fólk í ofþyngd.