Pressan

Þessi ummæli kvenna í miðjum samförum láta körlum „finnast þeir vera misheppnaðir“

Mynd

Játaðu það bara, það er æsandi að tala við bólfélagann til að segja honum hvað þú vilt í kynlífinu. Hvort sem það er að biðja hann um að hægja á sér, fara meira til hægri, nota fingurna samtímis eða strjúka afturendann á þér meira, þá koma slíkar óskir og leiðbeiningar sér yfirleitt vel fyrir báða aðila.

En það virðist sem eitt af því sem konur segja að sögn nokkuð oft geti valdið því að karlinn missi trú á sjálfum sér og limurinn á það jafnvel til að slappast ef þetta er sagt.

Þessi orð eru: „Ekki hætta, fastar.“

„Ég heyri þetta oft frá kvenkyns bólfélögum mínum,“ skrifaði „James“ á Reddit og bætti við: „Sérstaklega þegar ég tek þær harkalega aftan frá. Ég legg mig allan fram á slíkum stundum eða þar til þetta verður óþægilegt og ég missi reisnina. Þetta ýtir bara undir óöryggi um að ég sé ekki að standa mig í kynlífinu.“

Metro skýrir frá þessu og hefur eftir kynlífsfræðingnum Gigi Engle að það sé ekki óalgengt að karlmönnum finnist þeir vera undir álagi þegar eitthvað þessu líkt er sagt við þá í kynlífinu.

Hún sagði sumum körlum finnist mjög æsandi að heyra þetta en öðrum finnist sem þeir geti ekki fengið fullnægingu nógu hratt og séu því misheppnaðir í kynlífinu.  Þeir geti líka verið að gera þetta eins fast og þeir geta og því læðist sú hugsun að þeim að þeim finnist þeir ekki nægilega góðir og það geti valdið þeim vanda við að standa sig í kynlífinu.