Pressan

Fallhlífin hennar virkaði ekki – Hver vildi hana feiga?

Mynd
Victoria á leið í umrætt fallhlífarstökk.

Victoria hafði miklar áhyggjur af að eiginmaður hennar hefði í hyggju að skilja við hana og yfirgefa hana og börnin. En það var ekki það sem hann hafði í hyggju, hann var með allt annað og hryllilegra í huga.

Síðan létti Victoriu mikið og fylltist hamingju því loksins stakk eiginmaður hennar upp á að þau myndu gera eitthvað saman og ekki skemmdi fyrir að það var skemmtilegt!

Hann bauð henni í fallhlífarstökk yfir Salisbury Plains á sunnanverðu Englandi. Eitthvað sem Victoria hafði gert mörgum sinnum. Hún elskaði fallhlífarstökk. Hraðann, vindinn og sekúndurnar í frjálsu falli áður en hún opnaði fallhlífina.

En þannig var það ekki þennan vordag 2015, langt frá því.

Aðeins þremur sekúndum eftir að Victoria hoppaði út úr flugvélinni, vissi hún að eitthvað var að. Hún reyndi að opna fallhlífina í 1.200 metra hæð en ekkert gerðist. Fallhlífin opnaðist ekki.

„Þetta var svo rangt. Snúrurnar voru flæktar saman. Ég snerist í hringi,“ sagði hún síðar.

Victoria var 44 ára sjúkraþjálfari og átti rúmlega 2.500 fallhlífarstökk að baki. Hún vissi því vel hvað hún átti að gera í stöðu eins og þessari. Hún skar á fallhlífina og togaði í snúruna fyrir varafallhlífina. Það er það síðasta sem Victoria man eftir áður en allt varð svart.

Skemmdarverk á fallhlífinni

Vitni horfðu skelfingu lostin á Victoriu þjóta í átt til jarðar. Hún líktist tuskudúkku sem vindurinn kastaði til og frá sögðu vitnin síðar.

Engin átti von á að hún myndi lifa þetta af. En þvert á allar líkur þá var hún á lífi þegar vitnin komu að henni. Hún var strax flutt á sjúkrahús og sögðu læknar það vera kraftaverk að hún hefði lifað af.

Líklega var skýringin á því að Victoria lifði af að hún var mjög létt og hún lenti á nýplægðum, og þar með mjúkum, akri.

Hún brotnaði á baki, mjaðmagrindarbrotnaði, rifbeinsbrotnaði og fékk blæðingar innvortis. Á meðan hún lá á sjúkrahúsinu komst breska fallhlífastökksambandið, The Britsh Parachute Association, að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið um slys að ræða.

Mynd

         Fallhlíf Victoriu.

Einhver hafði unnið skemmdarverk á fallhlífinni hennar. En hver? Af hverju?

Síðar kom í ljós að sami aðili hafði áður reynt að drepa Victoriu, meira að segja heima hjá henni.

Undarleg hegðun á sjúkrahúsinu

Grunurinn beindist fljótlega að eiginmanni hennar, liðþjálfanum Emile Cilliers, sem hún hafði verið gift í sjö ár. Það var hann sem hafði krafist þess að geyma fallhlífina hennar þennan örlagaríka dag. Það hafði komið henni mjög á óvart.

Hún sagði þó ekkert við hann því samband þeirra var mun betra en það hafði verið um langa hríð.

Mynd

         Victoria og Emile.

Hún var þó mjög hissa á hegðun hans á meðan hún lá á sjúkrahúsinu. Í stað þess að vera áhyggjufullur maki var hann með allt annað á prjónunum þegar hann stóð við sjúkrabeð hennar. Hann kom með stafla af tryggingaskjölum.

„Hann sagðist ekki einu sinni elska mig. Hann sagði mér frá öllum áverkunum mínum og að við myndum fá 170.000 krónur fyrir hvert beinbrot og hann stóð þarna og taldi þau öll,“ sagði Victoria.

Ítrekað framhjáhald

Lögreglan lagði hald á farsíma og tölvu Emile. Ekki leið á löngu þar til hún fann mörg þúsund skilaboð og tölvupósta varðandi brúðkaup og rómantísk ferðalög.

En þetta hafði ekki verið sent til Victoriu heldur til annarra kvenna. Emile hafði haldið framhjá henni ítrekað.

Eitthvað var í gangi hjá honum og fyrrum eiginkonu hans, Carly. Hann hafði sofið margar nætur heima hjá henni þegar hann sagðist þurfa að „vinna yfirvinnu“. Þegar hann hafði lokið sér af hjá Carly ók hann oft til annarrar unnustu sinnar, Stefanie.

Hann hafði meira að segja verið í Berlín með Stefanie um áramótin. Hann hafði sagt Victoriu að um viðskiptaferðalag væri að ræða.

Misheppnuð

Victoria hafði haft á tilfinningunni að eitthvað væri að. Emilie, sem hafði verið svo ástríkur, var orðinn kaldur og afhuga henni. Hún óttaðist að hann myndi yfirgefa hana og börnin þeirra tvö.

Þegar hann var í „viðskiptaferðum“ skrifaði hún ástrík saknaðarbréf til hans. Oft svaraði hann ekki.

„Mér líður eins og ég sé misheppnuð eiginkona,“ skrifaði hún eitt sinn. Svar Emile var að hann þyrfti tíma til að hugsa. „Ég þarf að finna út úr hvort ég vilji vera áfram í þessu hjónabandi,“ skrifaði hann ískaldur.

Mynd

         Emile og Victoria á góðri stundu.

Þegar þarna var komið við sögu gekk Victoria með annað barn þeirra undir belti. Hún brotnaði grátandi saman og grét svo lengi og mikið að hún óttaðist að barnið myndi verða fyrir skaða.

En Emile var ekki aðeins við það að yfirgefa hana, hann var líka að reyna að drepa hana.

Dularfull lykt

Þegar Victoria hrapaði til jarðar á páskadag 2015 var það ekki í fyrsta sinn sem Emile hafði reynt að myrða hana.

Hann hafði reynt það mánuði áður, nánar tiltekið 30. mars 2015, á heimili þeirra í Amesbury í Wiltshire. En Victoria hafði ekki hugmynd um það.

Hún vaknaði snemma þennan morgun og fór inn í eldhús til að fá sér mjólkurglas og tók þá eftir undarlegri lykt í eldhúsinu, gaslykt.

Mynd

         Gaseldavélin sem Emile skrúfaði frá.

Hún skrifaði til Emile og spurði hvort hann hefði átt við gasventilinn í eldhúsinu því ferskir blóðdropar voru á honum. „Ertu að reyna að drepa mig?“ spurði hún létt í bragði.

Og já, það var hann að reyna að gera.

Tókst það næstum

En áætlun Emile tókst ekki og gerði hann líklega brjálaðan því hann var vanur að fá vilja sínum framgengt. Þegar hann vildi fá peninga tók hann háar upphæðir frá Victoriu án þess að hún uppgötvaði það. Þegar hann vildi stunda kynlíf fór hann til ástkvenna sinna eða vændiskvenna. Þegar hann vildi fara í frí með einhverri af ástkonunum, sagði hann Victoriu að hann þyrfti að vinna.

Þegar hann vildi losna við hana, reyndi hann að drepa hana. En það mistókst honum tvisvar.

Á meðan Victoria lá stórslösuð á sjúkrahúsinu byrjaði tvöfalt líf Emile hægt og rólega að brotna og hann var ákærður fyrir að hafa tvisvar reynt að myrða eiginkonu sína.

Fyrst játaði hann hjá lögreglunni að hann elskaði aðra konu, Stefanie. Síðan breytti hann framburði sínum og sagði að hún hefði bara verið „einnar nætur gaman“ sem hann sæi eftir.

Að lokum reyndi hann að skýra þennan mismunandi framburð með því að hann hafi verið í áfalli vegna slyssins.

Ótrúleg tilviljun

En hann gat ekki vikið sér undan því að hann hafði lifað tvöföldu lífi með Stefanie. Hann hafði sagt henni að hann væri skilin að borði og sæng við Victoriu og hann jós dýrum gjöfum, dýrum máltíðum og utanlandsferðum yfir hana. Allt var þetta greitt með peningum Victoriu sem grunaði ekkert.

Eitt af því sem hann sagði Stefanie, staðfesti það sem lögregluna grunaði. Hann hafði ítrekað sagt henni að frá apríl „gæti hann verið miklu ófyrirsjáanlegri“ en svo vildi einmitt til að það var í apríl sem Victoria hrapaði til jarðar.

Fyrir dómi sagði Emile að þetta væri bara algjör tilviljun.

Þegar saksóknarinn spurði hann um gaslekann og lausa ventilinn, sagði Emile: „Það var ekki ég.“ Sama svar kom frá honum þegar saksóknarinn spurði hann út í skemmdarverkið á fallhlífinni.

Í október 2018 var hann dæmdur í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn fyrr en eftir 18 ár.

Byggt á umfjöllun The Sun og Mirror.