Pressan

„Óþekkti flakkarinn“ auðkenndur eftir 43 ár – Skoða möguleg tengsl við Tylenol-morðin

Mynd
Mikil geðshræring greip um sig í kjölfar morðanna og voru Tylenol-vörur fjarlægðar úr hillum. Mynd/Getty

Lögreglan í Idaho hefur eftir 43 ára rannsókn borið kennsl á mann sem fannst látinn í kirkju í Boise árið 1982. Maðurinn, sem í áratugi gekk undir nafninu „Óþekkti flakkarinn“, reyndist vera Dr. Mathew Francis Betkouski.

Frekari skoðun á málinu hefur vakið grunsemdir um að Mathew þessi kunni að hafa tengst Tylenol-morðunum svokölluðu árið 1982. Þá var eitri laumað í Tylenol-verkjalyf sem seld voru í lausasölu og létust alls sjö manns eftir að hafa innbyrt lyfið.

CBS News greindi frá málinu í gær.

Tókst að finna bróður hans

Betkouski var ekki með nein skilríki á sér þegar hann fannst og í veski hans var nafnspjald sem gaf til kynna að hann hefði notað falskt nafn. Þá var hann með lyklakippu á sér með tæplega 30 lyklum, 1.900 Bandaríkjadali í 100 dollara seðlum og ýmsa persónulega muni.

Rannsókn á fingraförum hans leiddu ekkert í ljós og umfjöllun í þáttunum Unsolved Mysteries leiddi enga niðurstöðu af sér þrátt fyrir fjölda ábendinga.

Málið var tekið upp að nýju árið 2019. Rannsóknarlögreglumaðurinn Tim Cooper tók þá eftir sérstakri merkingu á einum lykli sem vísaði til ákveðinnar byggingavöruverslunar í Jacksonville í Flórída. Með því að rekja lykilinn og eignaskjöl frá svæðinu tókst að finna fjölskyldu Betkouski.

DNA-rannsókn staðfesti síðar að hinn látni og eftirlifandi bróðir hans áttu sama föður.

Gögn tengja hann við Chicago

Við rannsóknina komu jafnframt fram gögn sem hafa vakið áhuga vegna hinna óupplýstu Tylenol-morða í Chicago árið 1982.

Í gömlum munum Betkouski, sem fundust á heimili fjölskyldu hans í Los Angeles mátti meðal annars finna handteiknað kort af Chicago, ljósmyndir af honum á Chicago-svæðinu og litla flösku með natríumsýaníði.

Betkouski hafði einnig frá unga aldri haft mikinn áhuga á efnafræði og eitri. Samstarfsmenn hans höfðu meðal annars greint frá því að hann hefði rætt um hvernig hægt væri að fremja hinn fullkomna glæp og koma fyrir eitri í lausasölulyfjum. Hann hafði einnig gert tilraunir með efni á heimili sínu.

Lögreglan leggur þó áherslu á að þetta sé ekki sönnun fyrir því að Betkouski hafi komið að Tylenol-morðunum. Ekki hefur tekist að staðsetja hann í Chicago síðustu vikuna í september 1982, þegar eitranirnar áttu sér stað. Ljósmyndir sem fyrst var talið að væru frá þeim tíma virðast nú vera frá desember 1981.

Þá er bent á það í umfjöllun CBS News að flaskan sem fannst hjá fjölskyldu hans hafi innihaldið natríumsýaníð, en ekki kalíumsýaníðið sem notað var í Tylenol-eitrununum. Rannsakendur telja jafnframt að Betkouski hafi sjálfur búið sýaníðið til.

Samkvæmt rannsakendum kom Betkouski úr þekktri fjölskyldu í Los Angeles. Afi hans hafði verið forseti borgarstjórnar Los Angeles og gegnt tímabundið embætti borgarstjóra. Faðir hans var háttsettur starfsmaður hjá vatns- og rafmagnsdeild borgarinnar.

Cooper sagði að Betkouski hefði frá unga aldri haft mikinn áhuga á efnafræði og sprengiefnum og glímt við geðræn vandamál alla ævi. Alvarlegur höfuðáverki sem hann fékk árið 1974 gerði ástand hans verra og varð til þess að „sum vandamál hans birtust á mun varhugaverðari hátt en áður“, að sögn Cooper.

Skelfing greip um sig

Tylenol-morðin hófust 29. september 1982 þegar hin 12 ára Mary Kellerman lést eftir að hafa tekið Tylenol-hylki. Sama dag lést Adam Janus, 27 ára póststarfsmaður. Bróðir hans og eiginkona létust skömmu síðar eftir að hafa tekið hylki úr sömu dós.

Þrjár konur til viðbótar létust næstu daga, en alls voru fórnarlömbin sjö.

Morðin leiddu til mikillar skelfingar í Bandaríkjunum og Tylenol var tekið úr hillum víðs vegar um landið. Umfangsmikil rannsókn hófst en eftir öll þessi ár hefur enginn verið ákærður fyrir morðin.

James Lewis var lengi talinn aðalgrunaður. Hann tengdist fjárkúgunarbréfi sem sent var Johnson & Johnson skömmu eftir morðin, en var aldrei ákærður fyrir sjálf morðin. Lewis lést árið 2023.

Lögreglan í Idaho hefur nú afhent lögreglunni í Chicago allar upplýsingar sem hún telur mögulega tengjast málinu.