Pressan

Lekandi breiðist út – Sýklalyf virka ekki

Mynd
Það er góð hugmynd að nota smokk. Mynd/Getty

Kynsjúkdómurinn lekandi breiðist hratt út í Svíþjóð þessi misserin. Tilfellin eru ekki mörg en fjölgun þeirra er mikil þegar hún er reiknuð í prósentum.

Norska ríkisútvarpið skýrir frá þessu og segir að það sem af er ári hafi fjögur tilfelli af lekanda, sem sýklalyf vinna ekki á, greinst.

Á síðasta ári greindust níu slík tilfelli.

Áður greindust að hámarki þrjú slík tilfelli á ári.

Heilbrigðisyfirvöld telja að smitkeðja sé opin í landinu og vilja að vonum rjúfa hana.