Pressan

Myrti börnin sín og fær mikinn stuðning - Geðlæknir segir að hún hafi talið þetta börnunum fyrir bestu

Mynd

Mál Lindsay Clancy hefur vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum en hún svarar til saka fyrir dómstólum eftir að hún banaði þremur börnum sínum í janúar árið 2023. Hefur Lindsay gengist við morðunum en telur sig þó ekki seka með vísan til andlegra veikinda sem hún glímdi við á verknaðarstundu.

Taldi sig gera börnunum greiða

Læknir sem bar vitni í málinu segir að Lindsay hafi verið haldin þeim ranghugmyndum að ef hún myndi svipta sjálfa sig lífi yrði líf barna hennar svo óbærilegt að hún yrði að taka þau með sér.

„Í hennar huga trúði hún því að hún væri að gera börnum sínum greiða,“ sagði geðlæknirinn Phillip Resnick.

„Þar með gerði hún það sem hún taldi vera siðferðilega rétt, jafnvel þótt hún hafi áttað sig á því að það er vanalega ólöglegt að drepa börn. Hún taldi sig vera að gera það sem væri börnum hennar fyrir bestu.“

Resnick telur að Lindsay hafi verið í geðrofi. Hún hafi heyrt raddir sem sögðu henni fyrir verkum og eins upplifað að hún hefði enga stjórn á sínum eigin líkama.

„Það var eins og hún væri strengjabrúða og einhver annar að stjórna henni“

Glímdi við fæðingarþunglyndi

Lindsay er hjúkrunarfræðingur að mennt og glímdi við fæðingarþunglyndi eftir að þriðja barn hennar kom í heiminn árið 2022. Barnið fæddist í maí og fæðingarorlofi Lindsay lauk í september, en þá höfðu einkenni þunglyndisins versnað og Lindsay treysti sér ekki til að snúa aftur til vinnu. Illa gekk að leita sér aðstoðar. Hún prófaði lyf eftir lyf en ekkert virkaði. Á aðeins fjórum mánuðum hafði hún prófað 13 mismunandi geðlyf og glímdi við mikið og viðvarandi svefnleysi.

Áfram reyndi Lindsay að leita sér aðstoðar og prófaði enn fleiri lyf. Hún var greind með almenna kvíðaröskun og þunglyndi en geðlæknum hennar datt aldrei til hugar að vandinn gæti verið fæðingarþunglyndi. Lindsay var svo lögð inn á geðdeild í janúar 2023 og dvaldi þar í fimm daga. Þar var hún greind með alvarlegt þunglyndi og svefnvanda. Læknir taldi hana þó ekki vera í geðrofi. Lindsay ákvað svo sjálf að yfirgefa geðdeildina. Þann 23. janúar átti hún fjarfund við geðlækninn sinn og greindi þar frá depurð og sagðist eiga erfitt með að komast fram úr rúminu á morgnanna. Hún sagðist þó ekki glíma við sjálfsvígshugsanir eða hugsanir um að vinna öðrum mein.

Daginn eftir bað Lindsay eiginmann sinn um að sækja skyndibita og skreppa fyrir hana í apótekið. Á meðan kyrkti hún öll þrjú börnin með æfingateygju í kjallara heimilisins. Síðan reyndi hún að svipta sjálfa sig lífi með því að gera skurð á hendur sínar og háls og stökkva svo út um glugga á 2. hæð heimilisins. Þegar eiginmaður hennar kom heim fann hann konu sína fyrir utan. Hann rauk inn til að leita barnanna en fann þá börnin meðvitundarlaus. Tvö þeirra voru úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahúsið og það yngsta lést þremur dögum síðar. Lindsay hafði fengið mænuskaða í fallinu og er lömuð fyrir neðan mitti. Hún hefur lýst því að karlmannsrödd í hausnum hennar hafi sagt henni að fremja morðin. Verjendur Lindsay segja hana hafa verið í geðrofi vegna fæðingarþunglyndis. Sækjendur í málinu halda þó öðru fram. Lindsay hafi verið meðvituð um hvað hún var að gera og fullfær um að skilja afleiðingarnar.

Fær stuðning úr mörgum áttum

Þrátt fyrir að brot Lindsay séu hrottaleg og beindust gegn varnarlausum börnum hefur hún fengið gríðarlegan stuðning, einkum frá öðrum konum. Hundruð kvenna hafa komið saman fyrir utan dómshúsið. Þessir stuðningsmenn telja að mál Lindsay sýni erfiða stöðu kvenna með fæðingarþunglyndi. Þetta sé harmleikur sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir hefði Lindsay fengið hjálpina sem hún þurfti og reyndi að sækja sér.

Ein stuðningskona, lagaritari frá Rhode Island, sagði í samtali við Metro:

„Konum er vísað frá, þær eru vanræktar og hunsaðar þegar við tjáum okkur. Við lifum við ótta því enginn tekur okkur alvarlega.“

Eins telja sumir stuðningsmenn að málið sýni að bandarísk yfirvöld og samfélag styðji ekki nægilega vel við mæður. Lengja þurfi fæðingarorlof og eins þurfi að hlusta á mæður sem glíma við vanlíðan í kjölfar fæðinga. 

Barnsfaðir Lindsay, en þau skildu eftir að atvik máls komu upp, hefur eins staðið með sinni fyrrverandi konu og sakar heilbrigðiskerfið um að hafa brugðist fjölskyldunni. Fyrrum tengdamóðir Lindsay bar einnig vitni í málinu og segir að Lindsay hafi hrópað á hjálp en enga fengið. 

Eins hefur Lindsay borist stuðningur í formi fjársöfnunar sem foreldrar hennar standa fyrir en þar hafa safnast um 125 milljónir.