Pressan

Staðgöngumóðir neitaði að fara í þungunarrof og ætlar að halda barninu

Mynd
McKenna West.

Mál staðgöngumóður í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli þar í landi þar sem upp hafa vaknað stórar spurningar um rétt líffræðilegra foreldra og staðgöngumóður til barns. Staðgöngumæðrun er ekki heimiluð hér á landi en lögð hafa verið fram frumvörp sem myndi gera það kleift í velgjörðarskyni, hefur þeim verið hafnað, meðal annars á þeim forsendum að upp gætu komið mál sem reyna á siðferðisviðmið. 

McKenna West er hjúkrunarfræðingur og tveggja barna móðir frá Alaska, hún tók að sér að ganga með son hjónanna Nausheen Gilkar og Omar Ahmed frá Kaliforníu. Þegar West var komin 20 vikur á leið kom í ljós að fóstrið var með alvarlegan hjartagalla. 

Í samningi þeirra var ákvæði um að kynforeldrarnir gætu óskað eftir að þungun yrði rofin ef alvarlegt frávik kæmi í ljós og óskuðu þau eftir að West færi í þungunarrof. Því hafnaði West og fór til Texas til að eiga drenginn. Hann fæddist á miðvikudag og var sólarhring síðar afhendur líffræðilegum foreldrum sínum. West gaf honum nafnið Gabriel en foreldrarnir Rumi. Hefur West farið fram á að fá barnið aftur. 

Marla Neufeld, bandarískur lögfræðingur sem sérhæfir sig í frjósemis- og staðgöngumæðrunarrétti, segir við New York Post í dag að ekkert bendi til þess að West geti gert lögmætt tilkall til barnsins.

„Ég sé enga ástæðu fyrir því að kynforeldrarnir séu ekki áfram löglegir foreldrar barnsins,“ sagði Neufeld. Mikilvægt sé að greina á milli ákvörðunarréttar West yfir eigin líkama á meðan á meðgöngunni stóð og þess hverjir teljist foreldrar barnsins eftir fæðingu, það þýðir að ekki sé hægt að neyða staðgöngumóður í þungunarrof en staðgöngumóðirin fái samt engin réttindi yfir barninu. 

Dómstóll í Kaliforníu hefur þegar úrskurðað að Gilkar og Ahmed séu löglegir foreldrar drengsins. Neufeld segir West ekki vera kynforeldri barnsins og telur ekkert í lögum Alaska, Kaliforníu eða Texas veita henni rétt til þess.

Ken Paxton, ríkissaksóknari Texas, blandaði sér inn í málið skömmu fyrir fæðinguna. Hann lagði fram beiðni fyrir dómi um að tryggt yrði að drengurinn fengi nauðsynlega lífsbjargandi meðferð eftir fæðingu og að ekki yrði farið með hann úr ríkinu. Dómari féllst á beiðnina á þriðjudag.

Samkvæmt lögmanni kynforeldranna var drengurinn á fimmtudag undir umsjón sérfræðinga í barnalækningum. Foreldrarnir hyggjast, að sögn lögmannsins, setja heilsu og velferð barnsins í fyrsta sæti og fylgja ráðleggingum læknateymisins.

Sérstakur dómsúrskurður kemur sem stendur í veg fyrir að West fái að hitta drenginn. Hún ætlar þó ekki að gefast upp og hyggst berjast fyrir því að verða viðurkennd sem móðir hans.

Lögmaður hennar, Lincoln Wilson, sagði að hún væri reiðubúin að fara með málið alla leið fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna.

„Hún sækist eftir því að verða viðurkennd sem foreldri barnsins vegna þess að hún fæddi það í Texas, og í Texas er barn sem þú fæðir þitt barn,“ sagði Wilson.