Búið er að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust þegar yfirgefið hús í Niagara Falls í Kanada var rifið árið 2023. Leifarnar reyndust tilheyra Brendu Marie LeBlanc, konu sem hvarf sporlaust á tíunda áratug síðustu aldar.
Þó að kennsl hafi verið borin á Brendu er þeirri spurningu enn ósvarað hvernig hún endaði í húsinu.
Leifarnar fundust í nóvember árið 2023 þegar unnið var að niðurrifi húss við Stanley Avenue í Niagara Falls. Húsinu hafði verið skipt upp í nokkrar leiguíbúðir og var það nýtt til útleigu frá því seint á áttunda áratugnum og fram til ársins 2018.
Eftir að húsið tæmdist höfðu ýmsir farið þar inn í leyfisleysi.
Rannsókn leiddi fljótt í ljós að leifarnar væru af fullorðinni konu og að þær hefðu að öllum líkindum verið í húsinu eða á lóðinni árum saman. Talið var mögulegt að þær hefðu legið þar allt frá miðjum tíunda áratugnum.
Það var þó ekki fyrr en árið 2025 sem ráðgátan um hver konan væri leystist. Með DNA-rannsókn og ættfræðigögnum tókst að bera kennsl á konuna og reyndist hún vera Brenda Marie LeBlanc, sem fæddist árið 1963.
Lögreglan í Toronto, réttarmeinafræðideild Ontario og Othram-rannsóknarstofan í Texas komu að því að bera kennsl á hana.
LeBlanc var á þrítugsaldri þegar hún hvarf og hafði búið bæði í Niagara Falls og St. Catharines á tíunda áratugnum. Hún var upphaflega frá New Brunswick.
Þótt nú sé vitað hver hún var er enn óljóst hvað gerðist á síðustu dögum hennar. Lögregla segist ekki hafa komist að því hvernig LeBlanc endaði í húsinu við Stanley Avenue og engin þekkt tengsl hennar við fasteignina hafa fundist.
Málið er nú rannsakað sem manndráp.
„Miðað við það sem rannsóknin hefur leitt í ljós hingað til og réttarrannsókn á líkamsleifunum rannsakar lögreglan á Niagara-svæðinu dauða Brendu sem manndráp,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.
Lögregla leitar nú til almennings og biður alla sem þekktu LeBlanc eða kunna að hafa upplýsingar um ferðir hennar og athafnir á tíunda áratugnum að gefa sig fram. Vonast rannsakendur til þess að upplýsingarnar geti varpað ljósi á hvað kom fyrir hana og hvernig líkamsleifar hennar enduðu á þessum stað.
Eigendur fasteignarinnar hafa að sögn lögreglu sýnt fullan samstarfsvilja við rannsókn málsins.