Faðir í Ohio í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að 18 ára fangelsi eftir að hann þóttist vera 11 ára dóttir sín á TikTok, lokkaði mann sem grunaður er um að hafa nauðgað henni heim til fjölskyldunnar og skaut hann tvisvar.
Malik Chandler, 31 árs, hefur verið ákærður fyrir alvarlega líkamsárás og ólöglega vörslu skotvopns vegna málsins. Hann neitar sök.
Í frétt New York Post kemur fram að allt hafi þetta byrjað þegar móðir 11 ára stúlkunnar fann myndband í síma hennar sem saksóknarar segja sýna hinn tvítuga Diego Montoya Gonzalez beita stúlkuna kynferðislegu ofbeldi á heimili fjölskyldunnar.
Daginn eftir tók Chandler málin í sínar hendur. Hann þóttist vera dóttir sín á TikTok og fékk Gonzalez til að koma aftur á heimili fjölskyldunnar í Grove City.
Samkvæmt gögnum málsins ætlaði Chandler að ráðast á Gonzalez, halda honum á staðnum og kalla síðan til lögreglu. Atburðarásin tók hins vegar aðra stefnu þegar Chandler taldi sig sjá Gonzalez teygja sig eftir skotvopni í vasa sínum. Chandler greip þá byssu sem lá á borði og skaut Gonzalez tvisvar.
Þegar lögreglu bar að garði fann hún Gonzalez sitjandi í stól með tvö skotsár. Hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Mátti ekki eiga skotvopn
Chandler gæti nú sjálfur þurft að dúsa árum saman á bak við lás og slá. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir innbrot árið 2010, þegar hann var undir lögaldri, og var af þeim sökum óheimilt að eiga eða bera skotvopn.
Vegna þess gæti hann fengið allt að 18 ára fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Án skotvopnaákærunnar hefði hámarksrefsingin verið tólf ára fangelsi.
Chandler neitaði sök þegar hann kom fyrir dómara í síðustu viku og fjölskylda hans greiddi tíu þúsund dollara tryggingu fyrir lausn hans. Honum hefur verið gert að sæta rafrænu eftirliti og bannað að hafa samband við Gonzalez eða fjölskyldu hans.
Saksóknari greindi jafnframt frá því fyrir dómi að Chandler hefði verið sakaður um að elta ættingja Gonzalez fyrir utan dómshúsið og hóta að skjóta bróður hans „eins og hann skaut“ Gonzalez. Chandler neitar því að hafa haft slíkar hótanir í frammi.
„Ég vona það“
Móðir Chandlers hefur komið syni sínum til varnar og segir viðbrögð hans skiljanleg í ljósi þess sem dóttir hans er sögð hafa orðið fyrir.
„Ég veit af hverju hann gerði þetta. Þessi maður beitti barnabarnið mitt kynferðislegu ofbeldi – hann nauðgaði barnabarninu mínu,“ sagði hún í samtali við New York Post.
Hún benti á að Gonzalez væri tvítugur en barnabarnið aðeins ellefu ára.
Þegar hún var spurð hvort hún teldi að sonur hennar myndi gera það sama aftur var svarið afdráttarlaust:
„Ég vona það.“
Fleiri myndskeið fundust í símanum
Gonzalez stendur sjálfur frammi fyrir alvarlegum ákærum. Kviðdómur ákærði hann í síðustu viku fyrir fimm brot sem tengjast kynferðislegu myndefni, tvær nauðganir og fyrir að hindra störf yfirvalda.
Saksóknarar halda því fram að við rannsókn málsins hafi fundist nokkur myndskeið í síma hans sem sýni kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.
Gonzalez neitaði sök þegar hann kom fyrir dómara á mánudag. Hann var látinn laus gegn tryggingu en var handtekinn á ný strax daginn eftir, þá grunaður um innbrot og þjófnað.