Pressan

DNA-prófið afhjúpaði óhugnanlegan sannleika um föður hans

Mynd
Joseph Laedtke og móðir hans, Mary Ellen Lukezich.

Kona í Wisconsin í Bandaríkjunum og sonur hennar hafa höfðað mál gegn 91 árs gömlum kvensjúkdóma- og frjósemislækni sem þau saka um að hafa notað eigið sæði til að gera konuna þungaða án vitundar hennar eða samþykkis.

Mary Ellen Lukezich og sonur hennar, Joseph Laedtke Heider, höfðuðu málið fyrir dómstóli í Milwaukee-sýslu 6. ágúst. Þau telja jafnframt að fleiri konur kunni að hafa orðið fyrir sambærilegu athæfi læknisins, Frederick Dettmann.

Taldi sæðið koma frá læknanema

Málið á rætur sínar að rekja til ársins 1980 þegar Lukezich var 25 ára. Hún og eiginmaður hennar, Thomas Laedtke, höfðu átt í erfiðleikum með að eignast barn og leituðu því til Dettmann, sem hafði lengi verið kvensjúkdómalæknir hennar og starfaði einnig við frjósemislækningar.

Lukezich samþykkti að gangast undir tæknisæðingu með sæði frá nafnlausum gjafa sem hún taldi vera læknanema. Hún varð þunguð árið 1982 og fæddi Joseph árið eftir.

Í meira en fjóra áratugi hafði fjölskyldan enga ástæðu til að ætla annað en að Joseph væri getinn með sæði frá hinum nafnlausa gjafa. Það breyttist hins vegar árið 2024.

Joseph tók þá DNA-próf í gegnum Ancestry.com og niðurstöðurnar leiddu, samkvæmt stefnunni, í ljós að líffræðilegur faðir hans væri enginn annar en Dettmann sjálfur. Prófið leiddi jafnframt í ljós nokkur hálfsystkini og aðra ættingja sem Joseph hafði ekki vitað að væru til.

„Öll sjálfsmynd þín byggist á lygi“

Al Foeckler, lögmaður mæðginanna, segir Dettmann aldrei hafa sagt Lukezich að hann hygðist nota eigið sæði við sæðinguna. Hún hafi því aldrei veitt samþykki sitt fyrir því.

„Orð fá ekki lýst því hvernig það er að komast að því að öll sjálfsmynd þín byggist á lygi frá lækni sem sór eið um að valda ekki skaða,“ sagði Joseph í yfirlýsingu vegna málsins, að því er People greinir frá.

Hann sagði þó erfiðast að hugsa til þess sem móðir hans hefði gengið í gegnum.

„Hún var ung kona sem þráði ekkert heitar en að verða móðir.“

Mæðginin ákváðu að stíga fram opinberlega þar sem þau telja mögulegt að fleiri konur hafi lent í sambærilegu athæfi. Þau hafa hvatt fyrrverandi sjúklinga Dettmann, sem hafa fengið óvæntar niðurstöður úr DNA-prófum, til að gefa sig fram.

Foeckler segir nokkrar konur þegar hafa stigið fram og lýst samskiptum við lækninn sem þær upplifðu sem óþægileg.

Dettmann, sem er 91 árs og sestur í helgan stein í Arizona, hafnar ásökununum. Lögmaður hans, Sean Gaynor, bendir á að atvikin sem um ræðir eigi að hafa gerst fyrir nærri hálfri öld.

Hann segir Dettmann ekki muna eftir þeim einstaklingum sem nú hafa stigið fram og að honum sé ekki kunnugt um gögn sem styðji ásakanir þeirra.

Mæðginin krefjast skaðabóta vegna málsins en fjárhæð kröfunnar hefur ekki verið tilgreind.