Pressan

430 milljóna punda sæstrengur þarf að víkja vegna „grafar“ Dobby

Mynd

Aðdáendur Harry Potter urðu fjúkandi reiðir eftir að fregnir bárust af því að 430 milljóna punda verkefni myndi liggja nálægt „gröf“ Dobby.

Hér er gröf innan gæsalappa þar sem Dobby er skáldsagnapersóna í bókum J. K. Rowling um galdradrenginn Harry Potter og vini hans.

Greenlink-sæstrengurinn, sem er 125 mílna langur, er ætlað að tengja saman breska rafmagnsnetið og Írland og átti að liggja á milli Wexford-sýslu og Freshwater West í Pembrokeshire. Strengurinn er sagður geta knúið allt að 380.000 heimili.

Pembrokeshire er heimili „grafar“ Dobby. Í bókinni Harry Potter og dauðadjásnin deyr húsálfurinn ástkæri og er jarðsettur á Freshwater West ströndinni. Staðurinn hefur síðan orðið að raunverulegum helgidómi Dobby. Þar er hrúga af steinum, og á einum þeirra er skrifað „Hér liggur Dobby, frjáls álfur“. Þar eru líka tréstafir með sokkum og hönskum á, sem er hylling til goðsagna úr bókum og kvikmyndum þar sem álfur verður frjáls ef húsbóndi hans gefur honum flík. Dobby þjónaði Malfoy-fjölskyldunni sem kom illa fram við hann, en með hjálp Harrys endar Lucius á því að gefa honum sokk og hann er frelsaður.

Mynd

Eftir að aðdáendur Harry Potter fréttu af áformunum um að sæstrengurinn átti að leggja í gegnum ströndina þar sem gröf Dobbys er, ollu fréttirnar miklu uppnámi, svo miklu að lagningu sæstrengisins var breytt.

Simon Ludlam, forstjóri ráðgjafarfyrirtækisins Etchea Energy, kom nýlega fram í hlaðvarpinu The Energy Revolution og minntist viðbragðanna sem fyrirtækið fékk þegar fréttir bárust af neðansjávarstrengnum. Hann kostaði 430 milljónir punda (yfir 580 milljónir Bandaríkjadala) að leggja. Það var viðtal við BBC sem vakti athygli aðdáenda Harry Potter segir Ludlam.

„Þegar við höfðum komist að samkomulagi við öll yfirvöld, alla landeigendur og fólkið sem á ströndina, heimamenn, um hvernig við myndum ná sáttum man ég að BBC Wales sagði: „Gætuð þið komið hingað og gengið klárað þetta fljótt,“ sagði hann, samkvæmt The Independent .

Mynd

Ludlam segist hafa kaffærður með hundruðum símtala frá aðdáendum Harry Potter.

„Samstarfsmaður minn, Tom, sem vinnur við leyfisveitingar, sagði: „Simon, við verðum að svara þessum símtölum,“ hélt Ludlam áfram. „Og ég sagði: „Tom, ég er rosalega upptekinn.“ Og hann sagði: „Nei, nei, við verðum virkilega að svara þessu.““

Ludlam viðurkenndi að hann hefði ekki haft hugmynd um hver Dobby væri þegar hann komst að því hvers vegna fólk væri svona æst, en komst fljótt að hinu sanna eftir að samstarfsmaður hans sagði að þetta væri „mjög, mjög alvarlegt“ mál.

„Svo við höfðum samband við skipulagsfólkið og ræddum nákvæmlega hvernig ætti að breyta leið strengsins svo við færum ekki lengra ofan í gröf Dobbys,“ hélt Ludlam áfram. „Og margir voru mjög ánægðir með það og, þú veist, verkefnið er nú komið af stað og Dobby er ánægður.“

Mynd