Þann 21. september 2024 fékk Alemzewd Lawgalet að reynsluaka Tesla Model Y hjá bílasala í Arlington í Virginíu í Bandaríkjunum. Bílinn var stilltur á aflmestu akstursstillinguna sem felur í sér vélin skilar meira afli en venjulega.
Þegar Lawgalet beið á rauðu ljósi nærri Pentagon átti hún ekki von á að þegar hún æki af stað færi bíllinn miklu hraðar en hún taldi eðlilegt. En það gerði bíllinn og fór þvert yfir veginn og endaði inni á hárgreiðslustofu þar sem kviknaði í honum. The Independent skýrir frá þessu.
Lawgalet slasaðist alvarlega og hlaut varanlega áverka. Rýma þurfti húsið sem hún ók inn í.
Nú hefur hún höfðað mál gegn Tesla og krefst minnst 10 milljóna dollara í bætur vegna slyssins. Einnig krefst hún 350.000 dollara í refsibætur.
Í málshöfðuninni kemur fram að Lawgalet hafði aldrei áður ekið rafbíl og að sölumennirnir hafi fullvissað hana um að bíllinn virkaði nákvæmlega eins og bensínbíll.
Hún var send ein í prufuaksturinn án þess að fá útskýringar á hvernig bíllinn bremsar þegar aflgjafapedalanum er sleppt.
Í aflmestu stillingunni fer þessi bílategund úr 0 í 97 km/klst á 3,3 sekúndum.
Lawgalet segist ekki vita af hverju bílasalinn valdi þessa stillingu áður en hún fór í reynsluaksturinn.
Tesla hafnar því að bera nokkra ábyrgð á slysinu og segir að Lawgalet hafi látið hjá líða að sýna nægilega aðgæslu við aksturinn og að hún hafi ekki gert það sem í hennar valdi stóð til að takmarka meinta áverka sína. Með öðrum orðum er Tesla að segja að hún hefði getað lyft fætinum af aflgjafapedalanum áður en bíllinn lenti á húsinu.