Sýrlenskur dómstóll hefur dæmt Bashar al-Assad, fyrrverandi forseta og einræðisherra Sýrlands, til dauða að honum fjarstöddum fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni.
Assad er í Rússlandi en hann flúði þangað ásamt fjölskyldu sinni þegar stjórn hans hrundi í desember 2024. Þar með lauk rúmlega hálfrar aldar valdatíð Assad-fjölskyldunnar í Sýrlandi.
Í sama máli var Atef Najib, frændi Assads og fyrrverandi yfirmaður öryggislögreglunnar í Deraa-héraði í suðurhluta landsins, einnig dæmdur til dauða. Ólíkt Assad var Najib viðstaddur dómsuppkvaðninguna og sat í búri í réttarsalnum þegar dómurinn var lesinn upp.
Uppreisnin hófst í Deraa
Deraa skipar sérstakan sess í sögu borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi og er gjarnan kölluð vagga uppreisnarinnar gegn Assad.
Í mars 2011 voru nokkrir unglingar handteknir þar eftir að hafa verið sakaðir um að skrifa slagorð gegn stjórnvöldum á veggi. Þeir voru sagðir hafa verið pyntaðir í haldi og handtökurnar komu af stað mótmælum.
Öryggissveitir Assads brugðust við af mikilli hörku. Mótmælin breiddust fljótt út um landið og þróuðust að lokum yfir í borgarastyrjöld sem kostaði hundruð þúsunda manna lífið.
Najib var meðal annars sakfelldur fyrir morð, „vísvitandi dráp á börnum undir 15 ára aldri“ og „pyntingar sem leiddu til dauða“.
Assad enn í Moskvu
Ný stjórnvöld í Sýrlandi hafa á undanförnum mánuðum hafið réttarhöld yfir fyrrverandi embættismönnum og öryggisfulltrúum Assad-stjórnarinnar. Najib er einn háttsettasti maður gömlu stjórnarinnar sem hefur verið dreginn fyrir rétt.
Handtökuskipun var gefin út á hendur Assad í desember vegna ásakana um morð og pyntingar. Hann hafði þá flúið til Rússlands þegar hersveitir undir stjórn Ahmed al-Sharaa, núverandi forseta Sýrlands, sóttu að Damaskus í leiftursókn sem felldi stjórnina á aðeins ellefu dögum.
Fjöldi fyrrverandi embættismanna og öryggisfulltrúa hefur síðan verið handtekinn, en margir af valdamestu mönnum gömlu stjórnarinnar eru enn utan seilingar.
Þar á meðal er Assad sjálfur og óljóst er hvort nýjum stjórnvöldum í Damaskus takist að fá hann framseldan frá Rússlandi til að fullnusta dóminn.