Það þurfti ekki vélarbilun, óveður eða annað ófyrirséð atvik til að stöðva flug Porter Airlines frá Viktoríu til Toronto á fimmtudagskvöld.
Ungt barn neitaði að spenna á sig öryggisbeltið og á endanum varð niðurstaðan sú að fluginu var aflýst og þurftu sumir farþegar að gera sér að góðu að bíða fram á næsta dag eftir að komast leiðar sinnar.
Vélin var þegar farin frá flugstöðinni á Victoria-alþjóðaflugvellinum og á leið að flugbrautinni þegar áhöfnin tók eftir því að barnið stóð uppi í sæti sínu.
Foreldri barnsins og áhafnarmeðlimir reyndu að koma beltinu á barnið en án árangurs. CTV News greinir frá atvikinu og hefur eftir talsmanni Porter Airlines að ekki hafi verið talið öruggt að fara í loftið við þessar aðstæður og var vélinni því ekið aftur að flugstöðinni.
Í frétt CTV News kemur fram að talsverður tími hafi farið í að koma barninu og foreldri þess frá borði ásamt farangri þeirra, auk þess sem leggja þurfti inn nýja flugáætlun og ganga frá nauðsynlegri pappírsvinnu.
Þegar því var lokið var klukkan langt gengin eitt eftir miðnætti en flugbraut Victoriu-alþjóðaflugvallarins er lokuð yfir nóttina. Þar með var útilokað að vélin kæmist á loft þetta kvöld.
Farþegar flugs PD444 þurftu því að verja nóttinni í Viktoríu og bíða fram á föstudag eftir að komast áfram til Toronto.
Porter Airlines baðst afsökunar á þeim áhrifum sem þetta hafði á aðra farþega og staðfesti að farþegarnir kæmust leiðar sinnar með flugi daginn eftir.