Rannsókn stendur yfir í Chicago í Bandaríkjunum eftir að yfir 50 lík fundust við skelfilegar aðstæður á útfararstofu í borginni. Líkin voru komin mislangt í rotnunarferli og höfðu sum þeirra verið geymd í ókældu rými þar sem nagdýr og maðkur voru á kreiki.
CNN greinir frá málinu en líkamsleifarnar fundust á heimilisfangi sem tengist útfararstofunni South Chicago Chapel.
Embætti réttarmeinafræðings Cook-sýslu vinnur nú að því að meta ástand líkamsleifanna og bera kennsl á líkin. Leita starfsmenn embættisins meðal annars að gögnum um auðkenni þeirra og dánarvottorð.
Yfirvöld segja að sú vinna geti tekið nokkra daga en stefnt sé að því að bera kennsl á hina látnu eins fljótt og hægt er og láta aðstandendur þeirra vita.
Íbúi sem býr við hlið útfararstofunnar sagði við WBBM, samstarfsstöð CNN, að lengi hefði verið mikil ólykt frá húsnæðinu.
„Það er bara vond lykt þarna allan tímann. Hún er alveg hræðileg,“ sagði íbúinn.
Embætti réttarmeinafræðings hafði áður verið gert viðvart af yfirvöldum Illinois-ríkis og Chicago-borgar um grunsemdir þess efnis að lík væru geymd með ófullnægjandi hætti á útfararstofunni. Lögreglan í Chicago fór í kjölfarið á vettvang þar sem ófögur sjón blasti við.
Einn einstaklingur sem tengist útfararstofunni hefur verið sviptur starfsleyfi tímabundið á meðan rannsókn málsins stendur yfir.