Pressan

Lögreglan leysti upp ofbeldisfullt ræningjagengi á Tenerife – Átta handteknir

Mynd
Mynd: Guardia Civil lögreglan

Spænska lögreglan hefur handtekið átta manns sem grunaðir eru um að hafa staðið að umfangsmiklum og ofbeldisfullum ránum í fyrirtækjum víða á Tenerife. Lögreglan segir hópinn hafa verið virkasta glæpagengi eyjarinnar í ránum og beitt hótunum og mikilli hörku. Alls tengja rannsakendur hópinn við 34 afbrot á fjögurra mánaða tímabili.

Canarian Weekly greinir frá. 

Meðal skotmarka voru bensínstöðvar, veitingastaðir og önnur fyrirtæki. Þrír hinna handteknu hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir eru meðal annars rannsakaðir vegna ráns með ofbeldi og hótunum, innbrota og bílaþjófnaðar.

Að sögn lögreglu voru árásirnar vel skipulagðar. Liðsmenn gengisins huldu andlit sín og beittu meðal annars stórum hnífum, rafbyssum, sleggjum og öðrum bareflum til að ógna starfsfólki og viðskiptavinum. Ránin tóku yfirleitt aðeins nokkrar mínútur.

Hópurinn notaði leigubíla eða stolna bíla til að komast á vettvang og flýja. Stolnum skráningarnúmerum var komið fyrir á bílunum og þeim reglulega skipt út, til að torvelda lögreglu að rekja ferðir þeirra. Fyrir ránin voru fyrirtæki könnuð og eftir þau voru bílarnir skildir eftir á fyrirfram ákveðnum stöðum.

Tugmilljóna tjón

Talið er að glæpastarfsemin hafi valdið tjóni upp á meira en 160.000 evrur, eða hátt í 23 milljónir króna. Verðmæti stolins fjár og muna er metið á rúmlega 60.000 evrur, þar á meðal reiðufé, peningakassar, greiðslutæki, skartgripir og tóbak. Þá er eignatjón fyrirtækjanna talið nema meira en 100.000 evrum.

Við húsleitir á fjórum stöðum fundust meðal annars eftirlíking af vélbyssu, hnúajárn, rafbyssur, sleggjur, lyklar að leigubílum, tóbak og skartgripir.

Handtökurnar fóru fram þegar lögregla komst að því að hópurinn væri að undirbúa nýtt rán. Þegar gripið var til aðgerða eru hinir grunuðu sagðir hafa haft meðferðis lambhúshettur, stóra hnífa, sleggjur og rafbyssur.