Pressan

Hann er atvinnumaður í rússíbanareið: „Ég er alveg hryllilega lofthræddur“

Mynd

Sean Evans, sem heldur úti YouTube rásinni Lift Hills and Thrills, hóf atvinnuferð sína í rússíbanareið árið 2020 til að sigrast á lofthræðslu sinni. Efnið á rásinni fjallar um Evans sjálfan og tekur hann upp „skemmtilegu hliðarnar“ á rússíbönum sem honum fannst vanta meiri umfjöllun um, en ekki alla tæknilegu þættina og vélfræðina.

Evans segist vera venjulegur gaur frá Stoke í Bretlandi, en hann hefur farið í hundruð af ógnvekjandi rússíbanareiðum heims, allt frá Top Thrill 2 í Cedar Point í Ohio til Voltron í Europa-Park í Þýskalandi, og allt á meðan hann glímir við lofthræðslu.

„Til að horfast í augu við óttann minn,“ segir Evans aðspurður um af hverju hann starfar við þetta. „Ég er ennþá alveg hræðilega lofthræddur,“ viðurkennir hann. „Það virðist ekki skipta máli hversu hátt eitthvað er eða hversu oft maður fer í það, sú tilfinning virðist aldrei hverfa.“

Hins vegar finnst Evans eins og hann sé betur „búinn“ til að takast á við ótta sinn í rússíbanareiðum, vegna „öryggisbelta, góðra sæta og öryggis“, það er andlega baráttan á undan ferðinni sem nær honum.

Evans gæti líka þakkað FOMO (e. Fear Of Missing Out) fyrir hugrekki sitt til að horfast í augu við ótta sinn. En FOMO má útleggja á íslensku sem óttann við að missa af einhverju.

„Ég vil ekki vera sú manneskja sem missir af einhverju vegna þess að hún var hrædd við að gera það. Ég vil líta til baka og vera stoltur af því sem ég hef áorkað, og það er nákvæmlega sama hugarfarið þegar ég fer í þessar ferðir.“

Mynd

Evans segir að ákveðnir rússíbanar verði auðveldari eftir því sem hann fer í þá oftar en einu sinni. Það er þó ein tegund af rússíbanareið sem Evans segir að muni „hræða hann þar til hann deyr“: fallturn og tilfinningin um frjáls fall. Í mörgum af slíkum leiktækjum eru fætur fólks látnir hanga í loftinu, eitthvað sem Evans segist „aldrei komast yfir“.

 

Þegar Evans lítur til baka og rifjar upp hvernig hann horfðist í augu við óttann í fyrsta sinn man hann eftir því að vera í skólaferð í skemmtigarðinn Alton Towers í Englandi. Hann segist muna að hann myndi „sjá eftir“ því að fara ekki í stálrússíbanann Corkscrew, með öllum vinum sínum og sagðist hafa „sigrað hugann“.

„Þó að þú sért kannski skelfingu lostinn á þeirri stundu, þá er það eitthvað sem þú getur verið stolturaf, þú hefur sigrast á þeim ótta, jafnvel þótt það sé bara á þeirri stundu þegar þú fórst í rússíbanareiðina.Þetta snýst allt um að skilja þá hindrun sem hugurinn hefur sett í veg fyrir þig, en ef þú kemst yfir hindrunina þá verður það sem er hinu megin svo miklu meira gefandi.“

 

Evans segir þó að það versta sé að bíða í röð eftir að komast í rússíbana.  Á annatímum geta skemmtigarðagestir beðið í röð í margar klukkustundir og í biðröðinni magnast taugarnar hjá Evans.

Fyrir þá sem upplifa sama ótta mælir Evans með að kaupa hraðbrautarpassa, svo ekki þurfi ekki að standa eins lengi í röð. En fyrir þá sem eru spenntir er það þess virði að bíða lengur eftir fremsta sætinu?

Mynd

Er það þess virði að bíða lengur eftir fremsta sætinu í rússibana?

„Þetta er persónulegt val,“ segir Evans, en fyrir hann hjálpar það honum að takast á við lofthræðsluna að vera fremst, þar sem ekkert kemur í veg fyrir að hann sjái nákvæmlega hversu mörg hundruð feta hæð hann fer.

Hvað varðar gesti sem heimsækja skemmtigarð yfir daginn, segir Evans að „það sé í raun engin þörf“ á að eyða þessum auka mínútum eða klukkustundum í röðinni fyrir fremstu sætin.

„Ég skil alveg af hverju fólk stillir sig upp í röð til að finna fyrir hraðanum í leiktækinu. En ef þú hefur auka klukkustund til að standa fremst þegar þú getur bara hoppað upp í hvaða aðra röð sem er, þá finnst mér það bara skipta máli.“

„Svo lengi sem ég þarf ekki að standa í langri röð til að fara, þá gæti mér ekki verið meira sama hvar ég sit. Margir eru mjög kröfuharðir varðandi hvar þeir sitja. Hins vegar gæti mér í raun ekki verið meira sama. Leyfðu mér bara að fara með í ferðina,“ segir hann.

Evans passar þó alltaf upp á að sitja fremst þegar hann er að taka upp fyrir YouTube-rásina sína, því hann vill ekki hafa neina hausa sem eru fyrir.

Hvaða sæti er besta sætið í rússíbana?

„Besta sætið fer eftir því hvað þú vilt fá út úr ferðinni, segir Evans. „Ef þú vilt upplifa fullan hraða rússíbanans, þá er framendinn fyrir þig. Ef þú vilt njóta sem mestrar upplifunar í ferðinni þá sest þú aftast. Og fyrir þá sem eru óákveðnir og vilja bara „prófa ferðina“, þá er miðjan rétti staðurinn til að sitja í.