Hin 31 árs gamla Kiara Darvonne Bowling berst fyrir lífi sínu eftir að tveir ungir bræður, aðeins fjögurra og sex ára gamlir, tóku bíl foreldra sinna og óku á hana í Oakland í Kaliforníu á dögunum.
Bowling var úti að ganga með hund vinar síns þegar slysið varð á fimmtudag. Hún hlaut alvarlega höfuðáverka og liggur nú á Highland-sjúkrahúsinu í Oakland, að því er New York Post greinir frá.
Systir hennar, Christina Blackmon, segir að hún hafi fengið blæðingu á heila og beinbrot í andliti. „Við vonum bara innilega að hún nái sér sem allra fyrst.“
Að sögn lögreglu komust bræðurnir yfir lykla að bíl foreldra sinna og óku af stað. Frændi drengjanna segir foreldra þeirra hafa verið sofandi þegar þeir tóku lyklana.
Drengirnir óku á miklum hraða eftir götu í Oakland og rákust fyrst utan í bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
Vitni að atvikinu segir að annar drengurinn hafi virst sjá um að stýra bílnum á meðan hinn stjórnaði bensíngjöfinni og bremsunni. Bifreiðinni var síðan ekið á Bowling þar sem hún var úti að viðra hund vinar síns áður en bifreiðin staðnæmdist á húsi á götuhorni.
Myndir af vettvangi sýna bifreiðina mikið skemmda uppi á gangstétt og girðingu sem eyðilagðist í árekstrinum.
Drengirnir slösuðust báðir en eru sagðir í stöðugu ástandi. Sex ára drengurinn fótbrotnaði en fjögurra ára bróðir hans fékk heilahristing.
Hundurinn Grizzly, sem Bowling var með í göngutúrnum, slasaðist einnig en hljóp af vettvangi eftir slysið. Hann fannst síðar og var komið til dýralæknis.
Foreldrar drengjanna eru sagðir vinna með lögreglu að rannsókn málsins.
Bowling var krýnd Ms. Greater Bay Area í California Regency International-fegurðarsamkeppninni á síðasta ári. Hún er jafnframt á síðustu önn sinni við California State University, East Bay og hafði hug á að leggja fyrir sig lögfræði.