Pressan

Telja að Trump hafi verið með í ráðum um streymi flóttamannana til Ceuta

Mynd
Mynd/Getty

Sérfræðingar í alþjóðastjórnmálum telja víst að Donald Trump Bandaríkjaforseti og stjórnvöld í Bandaríkjunum hafi verið upplýst og jafnvel verið með í ráðum þegar tugir þúsunda flóttamanna streymdu yfir landamæri Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta í síðustu viku. Minnst 75 létust og hafa um 70 þúsund manns snúið aftur til Marokkó. Talið er að óverulegur fjöldi sé enn í Ceuta.

Ítarlega er fjallað um málið í Weekendavesen og rætt við David Alandete, fréttaritara spænska dagblaðsins ABC í Bandaríkjunum en hann hefur einnig skrifað nokkrar bækur um bandaríska utanríkisstefnu, og Georgi Gotev ritstjóra miðilsins Euractiv. 

Er vísað í samning Trump frá 2020 við Mohammed VI Marokkókonung þar sem Marokkó féllst á að viðurkenna Ísrael og á móti viðurkenndi Bandaríkjastjórn áralangar kröfur Marokkó um fullveldi yfir hinu umdeilda landsvæði Vestur-Sahara.

Samningurinn var hluti af svonefndum Abrahamssamkomulögum og lagði grunninn að nánu, stefnumótandi bandalagi Bandaríkjanna, Marokkó og Ísraels. Það samstarf hefur styrkst enn frekar í forsetatíð Trump nú.

Markmiðið að stjórn á siglingaleiðinni

Alandete telur að atburðirnir hafi verið liður í aðgerð sem Bandaríkjamenn hafi lagt blessun sína yfir.

„Það er ólíklegt að Marokkó taki slíkt skref án stuðnings frá Washington,“ segir Alandete í greiningu sinni.

Mynd
Tugir þúsunda streymdu yfir landamærin til Ceuta. Mynd/Getty

Stóra spurningin sé svo hvaða hagsmuni Trump hafi af því að láta marokkóskt farandfólk streyma inn í Ceuta. Að mati Gotev var raunverulegt markmið aðgerðarinnar að skapa óstöðugleika á Spáni til að ná fram stærri stefnumótandi markmiðum.

Eitt þeirra snýr að framtíðarstjórn yfir siglingaleiðinni inn í Miðjarðarhaf um Gíbraltarsund.

„Ringulreiðin sem skapaðist þegar tugþúsundir manna streymdu inn í spænsku hólmlenduna Ceuta í lok júlí var ekki einangrað landamæraatvik. Hún var hluti af víðtækari og sífellt harðnandi baráttu um yfirráð yfir mikilvægustu flöskuhálsum siglingaleiða heimsins,“ skrifar Gotev í greiningu á Euractiv.

Geti þróast á svipaðan hátt og Grænland

Ceuta stendur við mynni Gíbraltarsunds sem er ein fjölfarnasta siglingaleið heims, málefni siglinaleiða hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu vegna lokunar Írana og Bandaríkjanna á víxl á Hormússundi. Stór hluti af olíu- og gasbirgðum Evrópu frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku fer um Gíbraltarsund. Í dag hefur Spánn stjórn á siglingaleiðinni en vegna staðsetningar Ceuta nær spænskt landhelgissvæði frá meginlandi Spánar að norðurströnd Afríku.

Yfirráð Spánverja yfir innsiglingunni eru marokkóskum stjórnvöldum þyrnir í augum. Þau fara ekki leynt með að þau líta á Ceuta og Melilla sem hernumin landsvæði. Telja stjórnvöld í Marokkó að Bandaríkjamenn verði þeirra bandamenn í þeirri baráttu.

Er nú farinn að verða ótti á Spáni um að staðan geti þróast á svipaðan hátt og umræðan um Grænland en Trump hefur ítrekað gagnrýnt stjórnvöld á Spáni.