Eigendur BMW-bifreiða urðu margir brjálaðir þegar auglýsingar fyrir nýjustu kvikmyndina um köngulóarmanninn fóru að birtast í mælaborði bifreiða þeirra en að sögn framleiðandans er um að ræða samstarf BMW og Sony Pictures.
Eigendur hafa deilt myndskeiðum af auglýsingunni sem spilaðist þegar þeir settust inn í bíla sína á dögunum. Bílaeigendur telja að hér hafi bílaframleiðandinn farið yfir strikið enda sé það lágmarkskrafa að þeir sem versla sér rándýra BMW-bifreið geti treyst því að fá þar að vera í friði frá auglýsingum frá þriðja aðila.
Check this out, today when you start your BMW, you see an advert for #spiderman #brandnewday pic.twitter.com/vYRJ1QhnmA
— James Walker (@jwalkermobile) July 30, 2026
NEW: BMW remotely pushed a Spider-Man movie ad onto customer vehicle dashboards, sparking outrage over unwanted in-car advertising. pic.twitter.com/oKugKqSxr6
— Valuetainment (@valuetainment) August 4, 2026
seems crazy.
The movie Spider-Man: Brand New Day paid BMW to take over the display of every BMW made after 2020.
When you start a BMW, it shows you an ad for Spider Man. Really cheapens BMW imo. https://t.co/ylW3Jgearw pic.twitter.com/OWBBVTMMP3— Sheel Mohnot (@pitdesi) August 3, 2026
Málið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og hafa þar verið rifjaðar upp sambærilegar bíræfnar tilraunir fyrirtækja til að hafa fé af viðskiptavinum sínum og hafa hér nokkrar slíkar verið teknar saman.
1. Upphituð sæti gegn gjaldi
BMW hefur áður fengið yfir sig holskeflu ósvífni en framleiðandinn tók nýlega upp á því að krefjast áskriftargjalds fyrir upphituð sæti. Bifreiðar eru sem sagt seldar með slíkum búnaði en til að virkja hann var ætlast til þess að bifreiðaeigendur borguðu sérstakt gjald. Þetta vakti reiði þar sem ljóst var að bifreiðarnar eru búnar þessum búnaði og BMW þarf ekki að taka á sig nokkurn kostnað til að virkja hann.
Málið kom upp árið 2022 en áskriftargjaldinu var slaufað ári síðar.
2. Fjarstart
Toyota ákvað að fara aðra leið en að rukka fyrir upphituð sæti. Þess í stað ákvað framleiðandinn árið 2021 að rukka bílaeigendur fyrir fjarstart. Í þessu dæmi sem og í því fyrra er um að ræða búnað sem er til staðar þegar bifreiðin er keypt en greiða þarf sérstakt mánaðargjald til að virkja það með lyklafjarstýringunni. Eftir gífurlega neikvæð viðbrögð ákvað Toyota að taka málið til endurskoðunar.
3. Leysa hestöflin úr læðingi
Mecedes-Benz sá sér leik á borði og ákvað árið 2022 að rukka eigendur tiltekinna lúxusbifreiða um áskriftargjald svo þeir gætu nýtt öll hestöfl vélarinnar. Árgjaldið nam um 100 þúsund krónum. Ekki er að sjá að Mercedes hafi verið gerður bakreki með þetta útspil.
4. Vandlátur prentari
Tölvufyrirtækið HP kynnti árið 2015 kerfið Dymanic Security sem gerði það svo að verkum að prentarar fyrirtækisins neituðu að virka ef notendur settu í þá blek sem kom ekki frá HP. Þetta setti allt á hliðina og eru enn málaferli í gangi vegna þessa.
5. Eilífðarmúsin
Árið 2024 ákvað tölvufyrirtækið Logitech að kynna nýjungina Eilífðarmúsina eða Forever Mouse. Þetta átti að vera vönduð tölvumús sem gæti staðist tímans tönn en til að nota hana þyrftu viðskiptavinir að greiða mánaðargjald. Viðbrögðin við tilkynningunni voru hörð og var Eilífðarmúsinni slaufað áður en hún varð að veruleika.