Þýskur milljarðamæringur, sem bar ábyrgð á alþjóðlegum vexti skammtímaleigunnar Airbnb, á nú í hatrömmum deilum við fyrrverandi eiginkonu sína sem vill fá skilnaðarsamkomulagi þeirra hnekkt, meðal annars með vísan til þess að hún hafi verið lyfjuð þegar hún skrifaði undir. Hér er um að ræða ævintýralegar deilur Þjóðverjans Martin Reiter og fyrrum eiginkonu hans, Caroline Bauer, en þau slitu samvistum árið 2018.
Eftir skilnaðinn fluttu þau bæði, hvort í sínu lagi þó, frá Berlín til Lundúna. Áður en gengið var frá lögskilnaði skrifuðu þau undir samkomulag á árinu 2019 sem Caroline telur að hafi verið verulega ósanngjarnt í hennar garð. Hún hafi ekki fengið eingreiðslu úr verulegum auðæfum eiginmannsins, sem eru metin á tæpa 3 milljarða, og eins var þar samið um að hún fengi engan fjárstuðning frá sínum fyrrverandi eiginmanni eftir árið 2028.
Eftir að Caroline flutti til Lundúna leitaði hún til dómstóla þar sem hún krafðist þess að skilnaðarmálið yrði endurupptekið og því lokið með sanngjarnari hætti. Vísaði hún meðal annars til þess að þegar hún skrifaði undir skilnaðarpappírana hafi hún verið á svo háum skammti af róandi lyfjum að það hefði dugað til að deyfa heilan hest. Eins heldur hún því fram að geta hennar til að afla sér eigin tekna sé verulega skert vegna heilsubrests.
Dómur féll í málinu í október en þar ákvað breski dómstóllinn að hnekkja þýska samkomulaginu og gerði Martin Reiter að greiða eiginkonu sinni eingreiðslu upp á rúmlega 400 milljónir, 16 milljón króna árlegan framfærslueyri næstu 14 árin og svo veglegt meðlag með börnum þeirra.
Hvorugt var sátt við þessa niðurstöðu og takast nú á hjá áfrýjunardómstól þar sem Caroline freistar þess að fá enn hærri greiðslur og Martin freistar þess að endurvekja upprunalega skilnaðarsamninginn.
Heldur Martin því meðal annars fram að Caroline hafi sjálf komið sér í slæma stöðu með því að flytja til Lundúna þar sem framfærslukostnaður er mun hærri en í Berlín. Eins dregur hann í efa að Caroline sé óvinnufær og hefur hann meðal annars lagt fram myndbönd máli sínu til sönnunar þar sem Caroline sést dansa.
Telur Martin að breski dómstóllinn hafi farið fram úr sér þegar hann ógilti skilnaðarsamninginn og dæmdi Caroline mun stærri hlutdeild í eignum hans þrátt fyrir að sex ár væru þá liðin frá því að samningurinn var undirritaður. Á þessum langa tíma hafi Martin gift sig aftur og eignast tvö börn til viðbótar með nýju eiginkonunni.
Caroline heldur því fram að hún hafi verið beitt misneytingu þegar skilnaðarsamningurinn var undirritaður. Hún hafi glímt við andleg veikindi og tekið inn lyf vegna þeirra og því hafi hún ekki verið fær um að gæta hagsmuna sinna með fullnægjandi hætti.