Pressan

Réttarhöld að hefjast vegna morðsins á Tupac: „Einn af mínum mönnum tók upp Glock og skaut til baka“

Mynd

Á mánudaginn hefjast réttarhöld yfir Duane „Keffe D“ Davis, manninum sem saksóknarar telja víst að hafi skipulagt og tekið þátt í morðinu á rapparanum Tupac Amaru Shakur í september 1996, fyrir nærri 30 árum.

Tupac var aðeins 25 ára gamall þegar hann lést í skotárás þegar hann sat í bíl á aðalgötu Las Vegas. Þrátt fyrir ungan aldur hafði hann áorkað miklu, gefið út nokkrar plötur og leikið í kvikmyndum, ferillinn hafði þó farið í biðstöðu í hálft ár þegar hann afplánaði dóm fyrir kynferðisbrot. Tupac tók mikið upp á meðan hann lifði og voru upptökur af honum notaðar til að gera nokkrar breiðskífur sem komu út að honum látnum. Eru lögin hans allt frá partýslögurum yfir í róleg lög með þungum pólitískum skilaboðum. 

Mynd
Tupac í bílnum með Suge Knight. Skotið var á bílinn skömmu eftir að myndin var tekin.

Tupac var farþegi í BMW sem var keyrður af Marion “Suge” Knight, stofnanda plötuútgáfunnar Death Row Records á vesturstönd Bandaríkjanna, þegar skotið var á þá. Þeir höfðu verið að fylgjast með Mike Tyson og Bruce Sheldon keppa í hnefaleikum og voru á leiðinni á næturklúbb þar sem Tupac ætlaði að koma fram. Bíllinn þeirra var á rauðu ljósi þegar hvítur bíll stöðvaði við hliðina á þeim og skaut inn í bílinn. Suge lifði af en Tupac var skotinn fjórum sinnum, hann lést tæpri viku síðar á sjúkrahúsi.

Lengi vel var talið að morðið hans yrði aldrei leyst og að þeir sem báru ábyrgð á því að skjóta hann myndu aldrei mæta fyrir dóm. Þegar Tupac lést var hann í miklum deilum í rappheiminum og beindust spjótin lengi vel að rapparanum Diddy, áður Puff Daddy sem stýrði plötufyrirtækinu Bad Boy Records á austurströnd Bandaríkjanna.

Árið 2019 gaf Davis út sjálfsævisögu sína sem glæpamann í South Side Compton Crips-genginu, bókin og viðtöl tengd henni varð til að lögreglan opnaði rannsóknina á ný. Verjendur Davis segja að engar beinar sannanir séu fyrir aðkomu hans að málinu, hann hafi vissulega verið glæpamaður en hann hafi hætt fíkniefnasölu árið 2009. 

Móðir Tupac er látin en stjúpbróðir hans, Maurice „Mopreme“ Shakur sagði við fjölmiðla Vestanhafs að hann sé hóflega bjartsýnn. „Ég vona að réttarhöldin verði sanngjörn og við fáum sannleikann í málinu,“ sagði Mopreme.

Mynd
Spjótin hafa lengi beinst að Diddy. Sjálfur hefur hann alltaf neitað aðkomu sinni að málinu.

Gögn málsins benda til að morðið á Tupac hafi verið hluti af ágreiningi og valdabaráttu annars vegar plötuútgefendanna Death Row Records og Bad Boy Records, og hins vegar glæpagengjanna Mob Piru Bloods og South Side Compton Crips.

Saksóknari heldur því fram að Davis hafi skipulagt morðið á Tupac eftir að rapparinn tók þátt í að ráðast á frænda hans, Orlando „Baby Lane“ Anderson, fyrr um kvöldið. Sú árás hafði að gera með gengjamerki sem Baby Lane er sagður hafa reynt að stela nokkru áður. Grunur beindist að Baby Lane en hann var sjálfur myrtur árið 1998. 

Mikið af málatilbúnaði saksóknara byggir á bók Davis og ummælum sem hann lét falla í viðtölum vegna bókarinnar, verjendur hans reyndu að koma í veg fyrir að það yrði notað sem sönnunargögn í málinu. 

Í bókinni segir Davis að Tupac og félagar hans hafi „farið yfir strikið“ þegar þeir réðust á frænda hans. Þá hafi hann setið í aftursætinu á hvíta bílnum, þegar þeir hafi verið á rauðu ljósi hafi hann séð Tupac bregðast við og ætla að skjóta þá. „Einn af mínum mönnum tók upp Glock og skaut til baka,“ segir í bókinni. Ekkert vopn fannst í bíl Tupac og Suge. 

Mopreme hefur lagt áherslu á að möguleg tenging við Diddy sé könnuð nánar, sjálfur hefur Diddy ávallt staðfastlega neitað því að hafa aðkomu að morðinu á Tupac. Búist er að við Suge, sem afplánar nú langan dóm fyrir að keyra á mann, beri vitni.