Pressan

Innrammaði einstaka kvittun úr matvöruverslun

Mynd

Við þekkjum það öll sem verslum í matinn að vera boðið að taka kvittun fyrir kaupunum eða þurfa að prenta hana út sjálf ef við förum á sjálfsafgreiðslukassa. Margir taka aldrei kvittun og þeir sem taka hana henda henni fljótlega í ruslið. Viðskiptavinur verslunarinnar 7-Eleven í Jacksonville í Flórída í Bandaríkjunum ákvað að fara allt aðra leið. 

Reddit-notandinn ThebrooklinKnyte343 taldi kvittunina of sérstaka til að henda henni og innrammaði hana í staðinn. Hann deildi færslu á r/mildlyinteresting samfélaginu á Reddit, sem vakti fljótt athygli þúsunda meðlima.

Kvittunin hans sýndi að hann hafði eytt nákvæmlega 7,11 dollurum í 7-Eleven, nákvæmlega klukkan 19:11, þann 11. júlí (en Bandaríkjamenn skrifa dagsetningu 0711).

Hvort sem innkaupin voru tilviljun eða úthugsuð áætlun er þetta býsna skemmtilegt

„Ætla að gefa þessu 7 af 11,“ skrifaði einn við færsluna. Annar grínaðist með að kvittunin verðskuldaði sæti meðal mestu listaverka sögunnar og skrifaði: „Þetta á heima í Louvre-safninu.“