Pressan

Handsprengjur fundust við heimili á Kanaríeyjum

Mynd
Mynd: Policia Nacional

Lögreglan á Gran Canaria fjarlægði þrjár handsprengjur og skotfæri sem fundust í helli við nýkeypt hús í bænum Telde á eyjunni. 

Eigandi hússins fann sprengjurnar og skotfærin þann 31. júlí þegar hann var að hreinsa til í hellinum. Hafði hann þá strax samband við lögreglu. 

Sprengjusérfræðingar voru sendir á vettvang og sáu um að fjarlægja sprengjurnar og skotfærin með öruggum hætti. 

Engin slys urðu á fólki vegna þessa og málið er nú til frekari rannsóknar hjá lögreglu.

Sjá nánar um málið hér