Pressan

Giftist bróður drengs sem bjargaði lífi hennar með líffæragjöf fyrir 24 árum

Mynd

Árið 2002 var Brooklyn Dotson, aðeins nokkurra mánaða gömul, greind með sjaldgæfan lifrarsjúkdóm og fengu foreldrar hennar þau tíðindi að hún ætti aðeins þrjá daga eftir ólifaða. 

„Þau sögðu mömmu minni að hringja í útfararstofuna og gera ráðstafanir fyrir mig,“ sagði Dotson.

Mynd

Brooklyn, sem í dag er 24 ára, sagði að móðir sín hefði neitað að gefast upp og eftir að gjafalifur fannst gekkst Dotson undir lífsnauðsynlega ígræðslu á barnaspítalanum í Cincinnati í Bandaríkjunum. 

Líffæragjafi Dotson reyndist vera Michael Waters, sem barnungur var staðráðinn í að gerast líffæragjafi. Waters, frá Dayton í Ohio, var tíu ára gamall þegar hann varð fyrir bíl og lést. Foreldrar hans voru staðráðnir í að verða við ósk hans og gáfu líffæri hans þeim sem mest þurftu á þeim að halda, þar á meðal lifur hans til eins árs deyjandi ungbarns í Cincinnati. Líffæragjöf hans bjargaði þó ekki aðeins lífi Dotson fyrir öllum þessum árum. Hún kom henni einnig á braut til að hitta tilvonandi eiginmann sinn. 

Mynd
Michael fyrir miðju.

„Jafnvel sem krakki gerði hann hvað sem er fyrir alla ... hann var miklu þroskaðri en hann þurfti að vera,“ sagði Noah Waters um eldri bróður sinn. Eftir aðgerðina kynntust Brooklyn og Noah, urðu vinir og seinna kviknaði ástin. „Ég áttaði mig á því að ég hafði einhvers konar tilfinningar og það var eftir afmælið mitt,“ sagði Brooklyn. 

Mynd
Noah og Brooklyn sem börn.

„Mamma hafði haft samband við hann og sagði eitthvað á þá leið að Brooke hefði gaman af þér og sömu helgi kom hann til að hitta mig.“ 

 

Parið ætlar að gifta sig 26. september. 

„Ég myndi segja að hann vissi líklega hver tilgangur hans var. Ég hafði ekki hugmynd um að bróðir minn myndi bjarga lífi konu minnar 20 árum síðar,“ sagði Noah Waters um eldri bróður sinn.

 „Ég fæ að njóta lífsins vegna hans og ég fæ að lifa og vonandi heiðra minningu hans eins vel og ég get,“ sagði Brooklyn. „Þú færð eftirnafnið hans,“ bætti verðandi eiginmaður hennar glaðlega við.

Líffæragjöf bjargaði fleirum og maðurinn sem fékk hjarta hans verður gestur í brúðkaupi Brooklyn og Noah. 

Íslendingar eru sjálfkrafa líffæragjafar

Íslendingar byggja löggjöf sína um líffæragjafir á ætluðu samþykki. Því verða allir sjálfkrafa líffæragjafar við andlát, hafi þeir ekki áður lýst sig andvíga líffæragjöf. Þeir sem eru andvígir því að gefa líffæri geta skráð það á Mínum síðum á Heilsuveru. Einnig má leita aðstoðar heimilislækna og hjúkrunarfræðinga heilsugæslunnar við að skrá afstöðu.

Líffæragjöf er þegar hjarta, lungu, lifur, nýru, bris eða þarmar eru fjarlægð úr látnu fólki og grædd í sjúklinga þar sem tiltekin líffæri eru alvarlega vanstarfhæf eða alveg óstarfhæf. Einnig má nefna að bæta má sjón sjónskertra með því að græða í þá hornhimnu látins fólks. Í vissum tilfellum eru líffæragjafir frá lifandi fólki. Algengt er að ígrædd nýru komi frá lifandi gjöfum, oftast nánum ættingjum sjúklinga. Í stöku tilvikum er líka hluti lifrar í lifandi gjafa notaður til ígræðslu.

Lesa má frekar um líffæragjöf á Island.is.