Pressan

Vara ferðamenn við – Margir hafa veikst eftir dvöl á „allt-innifalið“ hótelum

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Heilbrigðisyfirvöld í Bretland og Bandaríkjunum segja að sífellt fleiri hafi smitast af sníkjudýri sem getur valdið alvarlegri magaveiki. Mörg þúsund manns hafa smitast í Bandaríkjunum og yfirvöld eru enn að rannsaka upptök smitsins.

Bandaríska matvælaeftirlitið FDA segir að rekja megi hluta af smitunum til salats frá Mexíkó. The Sun skýrir frá þessu.

Yfirvöld eru enn að leita að öðrum upptökum smitsins.

Bresk heilbrigðisyfirvöld ráðleggja ferðafólki að drekka vatn úr flöskum og kaupa mat sem er eldaður í gegn. Hrátt salat, ferskar kryddjurtir, ber og ávextir, sem ekki hefur verið tekið utan af, er eitthvað sem er rétt að forðast að sögn yfirvalda.

Sníkjudýrið berst með óhreinum mat eða vatni og berst ekki á milli fólks.

Margir Bretar hafa smitast í Mexíkó og einnig í Bandaríkjunum og Keníu. Margir þeirra höfðu dvalið á „allt-innifalið“ hótelum.