Pressan

Þrisvar sinnum hefur gullsmiðurinn verið dæmdur fyrir manndráp – Ráðherrar vilja náða hann

Mynd
Hann fékk þungan dóm.

Dómsmálaráðherra sem trúir ekki á lög og reglu, forsætisráðherra sem hvetur til samúðar og varaforsætisráðherra sem vill auðvelda fólki að taka lögin í eigin hendur.

Þetta er afleiðingin af skotum sem var hleypt af í litlum ítölskum bæ fyrir fimm árum og afleiðingarnar virðast ætla að verða miklar.

Síðan 2021 vissi gullsmiðurinn Mario Roggero að það gæti komið að skuldadögum. 2021 var árið sem gullsmíðaverslun hans í Grinzane Cavour, sem er lítill bær með nokkur þúsund íbúa, var rænd í annað sinn.

Ræningjarnir þrír ógnuðu honum með hnífi og skammbyssu, sem reyndist síðan vera leikfangabyssa, bundu dóttur hans, ýttu konunni hans inn í bakherbergi og rændu verðmætum úr versluninni og stungu af.

Nokkrum sekúndum síðar fór Roggero á eftir þeim með skammbyssuna sína, sem lá undir afgreiðsluborðinu, og skaut þá af stuttu færi þegar þeir reyndu að stinga af í bíl sem beið þeirra fyrir utan verslunina. Tveir létust og sá þriðji særðist.

Málið var tekið fyrir dóm í fyrsta sinn 2023 og var hann þá dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir manndráp. Dómararnir voru ekki sammála Roggero um að hann hafi skotið ræningjana í hreinni sjálfsvörn.

Ástæðan var að Roggero dró skammbyssuna ekki fram á meðan ræningjarnir voru í versluninni. Hann elti þá og skaut þegar þeir voru að fara inn í flóttabílinn. Þetta sést á upptökum eftirlitsmyndavéla.

Roggero var því ekki í bráðri hættu og gat því ekki borið við sjálfsvörn að mati dómaranna í áfrýjunarréttinu í Torino sem dæmdi hann í 14 ára og 9 mánaða fangelsi í desember 2025.

Nýlega hlaut hann sömu refsingu þegar málið var tekið fyrir á þriðja dómstigi.

Þar með má kannski reikna með að þetta sé búið spil hjá Roggerio, sem er 72 ára, sem sagði í kjölfar dómsniðurstöðunnar að dómurinn hefði alveg eins geta dæmt hann í ævilangt fangelsi.

En hann er ekki hættur að berjast og í samtali við La Repubblica sagði hann: „Réttarvörslukerfið getur ekki staðið með fórnarlömbunum, það heldur með afbrotamönnunum.“

Hann nýtur mikils stuðnings á Ítalíu og áhrifafólk styður hann og stjórnmálamenn vilja breyta lögunum þannig að fólki verði ekki refsað fyrir að taka lögin í eigin hendur.

Það var varla búið að lesa dómsorðið upp í desember þegar Matteo Salvini, varaforsætisráðherra, fór fram á að Roggero yrði náðaður. Hann hefur margoft heimsótt Roggero í fangelsið og hefur verið myndaður í bol með mynd af Roggero og texta þar sem þess er krafist að hann verði náðaður.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra, sagði í viðtali við Corriere della Sera að hún hafi samúð með Roggero sem hún sagði hafa glímt við stress eftir að verslun hans var rænd 2015. Hún sagðist telja að dómsniðurstaðan sé ósanngjörn.

Í hinni heitu umræðu um málið hefur verið bent á afbrot barnaníðinga og útlendinga. Rétt er að taka fram að ræningjarnir þrír voru eins ítalskir og hægt er að vera.

Carlo Nordio, dómsmálaráðherra, er undir miklum þrýstingi um að náða Roggero en Sergio Mattarella, forseti, benti honum á að það sé aðeins forsetinn sem geti náðað fólk. Dómsmálaráðherrann virðist ekki vilja trúa þessu og í viðtali við Corriere delle Sera sagði hann þetta þurfi að ræða og að reynslan hafi sýnt að „lög séu alltaf spurning um afstöðu“.

Blaðamaðurinn spurði hann þá hvort það geti verið að dómsmálaráðherrann trúi ekki á réttarvörslukerfið. „Nei,“ svaraði hann og sagðist trúa á nauðsyn „jákvæðs réttlætis“.