Pressan

Þóttist vera íslamisti til að blekkja eiginkonuna og vini Lisu

Mynd
Aliana Hall og Sharif Ahmadzai.

Afganski boxarinn sem er grunaður um að myrða Elisabeth Jane Ross er sagður hafa þóst vera íslamisti til að varpa sökinni af sjálfum sér. Líkt og fjallað var um í gær er hinn 26 ára gamli Sharif Ahmadzai í varðhaldi í Grikklandi grunaður um að myrða Elizabeth, ávallt kölluð Lisa, í Aþenu. Málið hefur vakið mikinn óhug og athygli þar sem Lisa, sem var 38 ára gömul og frá Skotlandi, starfaði með hælisleitendum en Sharif kom til Grikklands sem hælisleitandi frá Afganistan. Munu þau hafa kynnst í gegnum störf sín með hælisleitendum. 

Lík Lisu fannst í ferðatösku í yfirgefnu húsi ekki langt frá hinni sögufrægu Akrapólishæð. Óhugnanlegt myndband sýnir Sharif draga töskuna í gegnum miðborg Aþenu.

Sjá frétt: Sláandi upptaka sýnir meintan morðingja færa lík Lisu

Sharif hefur játað að hafa sett Lisu í töskuna og fara með hana í yfirgefna húsið en hann neitar að hafa myrt hana, hann hafi einungis fundið hana látna í baðkari í íbúð sem hann var með lykil af. Aliana Hall, eiginkona Sharif, hafði samband við lögreglu eftir að Lisa var nafngreind.

Mynd

Samkvæmt umfjöllun Telegraph notaði Sharif síma til að þykjast vera íslamisti, sendi hann skilaboð á sjálfan sig, eiginkonu sína og vini Lisu til að telja þeim í trú um að einhver íslamisti hefði myrt hana af trúarlegum ástæðum. Notaði hann kort hennar til að taka út mörg þúsund evrur. 

Samkvæmt heimildarmönnum The Sun er talið að Sharif hafi myrt Lisu þegar hún tók illa í kynferðislega tilburði, er talið að hún hafi verið kyrkt. 

„Hann fór í íbúðina þar sem hún dvaldi af einhverri ástæðu, það er ekki talið að það hafi verið til að ræna hana,“ segir George Kalliakmanis hjá stéttarfélagi lögreglunnar í Aþenu. „Hver var ástæðan. Það er ekki hægt að útiloka neitt. Hafnaði hún honum? Það er ekki hægt að útiloka það.“

Sharif kom til Grikklands með báti þegar hann var fimmtán ára árið 2016. Hann gerðist kristinn árið 2017 og kynntist eiginkonu sinni þegar hún var sjálfboðaliði í flóttamannabúðum, þau giftu sig árið 2023 í óþökk fjölskyldu hennar.