Ný alþjóðleg könnun varpar ljósi á hvaða störf eru helstu draumastörf fólks um allan heim. Sum kalla á langa menntun en önnur ekki.
Það var Remitly, sem býður upp á fjárhagslega þjónustu við þá sem flytja til útlanda til að vinna, sem gerði könnunina og var þetta í þriðja sinn sem fyrirtækið gerði þessa könnun.
Hún er byggð gögnum um hverju fólk leitaði að með leitarvél Google frá maí 2025 til maí 2026. Náði könnunin til 145 landa og 424 mismunandi starfa.
Þegar könnunin var gerð 2022 og 2024 var vinsælasta draumastarfið að vera flugmaður. Núna er það í öðru sæti en helmingi færri leituðu að því í leitarvélinni en 2024.
Listinn er svona:
1. Leikari/leikkona
2. Flugmaður
3. Slökkviliðsmaður
4. Lögmaður
5. YouTubari
6. Dýralæknir
7. Flugfreyja/flugþjónn
8. Lögregluþjónn
9. Fasteignasali
10. DJ