Pressan

Slæm stemmning – „Allir óttast hana“

Mynd
Melania Trump gefst ekki upp.

Það fer lítið fyrir Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, út á við en í Hvíta húsinu veit fólk vel hvaða völd hún hefur og vill fólk alls ekki fá hana upp á móti sér. Raunar er staðan sú að allir í Hvíta húsinu óttast hana.

Þetta kemur fram á bloggi blaðamannsins Michael Wolff. „Allir í Hvíta húsinu óttast Melania Trump og völd hennar, ef hún kýs að nota þau,“ skrifaði hann.

„Þau telja líklegast að hún geri það ekki, eða að minnsta kosti að hún noti þau ekki svo augljóst sé, að þetta sé bein ógn við valdið, en þau geta ekki verið viss,“ skrifaði Wolff.

Hann hefur skrifað nokkrar bækur um Donald Trump og fjölskyldu hans og telur sig því þekkja vel til forsetans og fjölskyldu hans. Hann segist vita að samband forsetans og eiginkonunnar sé ekki gott og hafi ekki verið síðan réttað var yfir Trump 2018 þegar hann var sakaður um að hafa greitt klámstjörnunni Stormy Daniels fyrir að halda kynferðislegu sambandi þeirra leyndu.

Wolff segir að hjónin tali aldrei saman og að þegar þau koma saman fram opinberlega sé búið að semja um allt fyrir fram.