Pressan

Rússnesk fyrirtæki segja fjölda fólks upp – Afleiðing vaxandi vanda í efnahagskerfinu

Mynd
Frá Moskvu.

Vaxandi vandamál í rússnesku efnahagslífi hafa nú beinar afleiðingar fyrir rússnesk fyrirtæki og starfsfólk þeirra. Mörg þeirra eru byrjuð að segja upp fólki og tíunda hvert fyrirtæki íhugar að fækka starfsfólki.

The Moscow Times skýrir frá þessu. Samkvæmt niðurstöðu, könnunar sem atvinnurekendur gerðu nýlega meðal rússneskra fyrirtækja, þá íhuga 40% þeirra að skera niður starfsmannakostnaðinn.

Það má velta fyrir sér hvort þetta sé merki um að stríðsefnahagurinn sé að glata þrótti? Vextir eru háir í landinu og það heldur aftur af fjárfestingum, verðbólgan étur kaupmáttinn upp og skortur á vinnuafli dregur úr framleiðni fyrirtækja.

Einnig eru teikn á lofti um að ríkisrekna stríðsframleiðslan geti ekki lengur haldið öðrum hlutum efnahagsins á floti. Þegar fyrirtæki byrja að segja starfsfólki upp, þá er það merki um að efnahagsvandinn sé að teygja sinn inn í hversdagslífið. Ef þessi þróun heldur áfram, þá gengur það gegn fullyrðingum ráðamanna í Kreml um að rússneskt efnahagslíf hafi það mjög gott.